Beint á leiðarkerfi vefsins

Trúnaðarmenn

Á flestum vinnustöðum starfa trúnaðarmenn og eru trúnaðarmenn SFR um 240 talsins og mynda þétt tengslanet um land allt. Trúnaðarmenn mynda saman trúnaðarmannaráð SFR.

Kosning trúnaðarmanna SFR fer fram annað hvert ár á oddatöluári. Hafa ber i huga að sá sem starfsmenn velja sem sinn trúnaðarmann er fulltrúi þeirra gagnvart vinnuveitanda.

Trúnaðarmenn eru fulltrúar stéttarfélagsins úti á vinnustöðum. Þeir gegna mikilvægu hlutverki þar sem þeim ber að gæta þess að samningar á milli atvinnurekenda og starfsmanna séu virtir og að ekki sé gengið á rétt starfsmanna. Þeir standa þó aldrei einir því stjórn og starfsmenn félagsins eru þeim til stuðnings við að leysa úr vanda sem upp kann að koma og heyra undir starfssvið félagsins. 

Sjá nánar um trúnaðarmenn hér.


Slóðin þín:

Um SFR » Trúnaðarmenn