Beint á leiðarkerfi vefsins

Ráð og nefndir

Trúnaðarmannaráð er myndað af öllum trúnaðarmönnum félagsins og stjórn. Á hverjum þeim vinnustað, þar sem fimm eða fleiri félagsmenn SFR starfa, skulu þeir kjósa sér trúnaðarmann í septembermánuði annað hvort ár. Hlutverk trúnaðarmannaráðs er að vera stjórn félagsins til stuðnings og afgreiðir það þau mál sem ekki þarf að leggja fyrir félags- eða aðalfund. Trúnaðarmannaráð annast undirbúning kjarasamninga og tekur ákvörðun um uppsögn þeirra. Listi yfir trúnaðarmannaráð.

Félagsráð mynda stjórn félagsins, formenn fagfélaga/deilda og stéttarfélaga og 15 trúnaðarmenn kosnir af trúnaðarmannaráði á fyrsta trúnaðarmannaráðsfundi að hausti eftir kosningu á oddatöluári. Samkvæmt lögum SFR er það hlutverk félagsráðs að taka fyrir og afgreiða mál sem eru þess eðlis að ekki þurfi afgreiðslu félagsfundar eða stjórnar SFR. Félagsráð skal vinna að stefnumótun fyrir félagið í samráði við stjórn og annast undirbúning fyrir aðalfund félagsins, þar á meðal að kjósa uppstillinganefnd og laganefnd þegar það á við. Á fundum félagsráðs skal gerð grein fyrir fjárhagsstöðu sjóða félagsins og lögð fram skýrsla yfir starfsemina. Félagsráð skal ákveða hvaða fastanefndir skulu starfa og setja þeim reglur og kjósa í þær og getur einnig stofnað aðrar nefndir eða vinnuhópa innan félagsins í kringum sérstök verkefni. Félagsráð var kosið í fyrsta sinn á fundi trúnaðarmanna 1. september 2011, sjá fulltrúa þess hér.

Nefndir SFR eru ekki bundnar í lögum félagsins, heldur ákvarðaðar af stjórn hverju sinni. Núna eru starfandi menningar- og skemmtinefnd, fræðslunefnd, jafnréttisnefnd og ritnefnd. Trúnaðarmannaráð kýs í nefndirnar annað hvert ár, það ár sem er ekki kosið trúnaðarmannaráð.

Fræðslunefnd (kosið 10.11.2010)
Anna Ingvadóttir, Svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra Reykjavík
Anna Atladóttir, Landspítali
Guðjón Bjarki Sverrisson, Málefni fatlaðra, Reykjanesi
Salóme Berglind Guðmundsdóttir, Fangelsismálastofnun ríkisins
Þórey Jóhanna Pétursdóttir, Umhverfisstofnun

Ritnefnd (kosið 10.11.2010)
Birna S. Karlsdóttir, Sýslumaðurinn í Reykjavík
Friðrik Atlason, Sambýlið Trönuhólum
Guðrún Valgerður Bóasdóttir, Háskóli Íslands
Jenný Olga Pétursdóttir, Veðurstofa Íslands
Svala Norðdahl, einstaklingsaðild

Menningar- og skemmtinefnd (kosið 10.11.2010)
Augustin Dufatanye, Málefni fatlaðra Reykjavík
Halldóra Þ. Ólafsdóttir, Bændasamtök
Harpa Karlsdóttir, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Olga Gunnarsdóttir, Skógarbær
Sigrún Geirsdóttir, Iðjuberg

Jafnréttisnefnd (kosið 10.11.2010)
Augustin Dufatanye, Málefni fatlaðra, Reykjavíkurborg
Elvar Ástráðsson, Veðurstofa Íslands
Jóhanna Sóley Gunnarsdóttir, Landspítali
Óskar Þór Vilhjálmsson, Háskólinn á Akureyri
Sylvía Margrét Valgeirsdóttir, Landspítali

Uppstillinganefnd (kosið 23.09.2011)
Einar Andrésson, Fangelsismálstofnun Íslands
Hildur Gunnarsdóttir, Biskupsstofa
Ingibjörg Óskarsdóttir, Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Sigrún Kristjánsdóttir, ÁTVR
Sigurður Skúlason, Skógrækt ríkisins

Laganefnd (kosið 23.09.2011)
Árni Stefán Jónsson, formaður SFR
Svala Norðdahl, einstaklingsaðild
Viðar Ernir Axelsson, Varnarmálstofnun

 


Slóðin þín:

Um SFR » Ráð og nefndir
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti