Úthlutunarreglur Símenntunarsjóðs LSFR
Símenntunarsjóður LSFR
Nýjar úthlutunarreglur fyrir Símenntunarsjóð Lífeyrisdeildar SFR sem tóku gildi 23. febrúar 2012.
Hver á rétt á styrk?
- Þeir sem eru skráðir í Lífeyrisdeild SFR þegar námskeið/verkefni hefst.
Hvað eru styrkirnir háir og hvað er styrkt?
- Greiðslur úr sjóðnum geta aldrei orðið hærri en 50% af námskeisgjaldi, en þó aldrei meira en kr. 13.000 á önn.
- Greiðslur geta þó orðið lægri ef umsóknir í sjóðinn eru margar.
- Hægt er að fá úthlutað tvisvar á hverju almanaksári, en þó einungis einu sinni á hvorri önn (vor / haust).
- Allt almennt nám sem styrkir einstaklinga og eflir andann er styrkhæft. Ekki er greitt fyrir kort í líkamsrækt, sund eða sambærilegt.
Hvernig er hægt að sækja um styrk?
- Umsóknir um styrk skulu sendar á skrifstofu SFR, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík á þar til gerðu eyðublaði sem liggur frammi á skrifstofu SFR. Hægt er að nálgast eyðublaðið hér á vef SFR.
- Tilgreina þarf hvaða námskeið/verkefni umsækjandi óskar eftir að fá styrk til.
Hvernig er greitt úr sjóðnum?
- Úthlutun úr sjóðnum fer fram tvisvar sinnum á ári, 15. maí og 15. nóvember, eða fyrsta virka dag þar á eftir ef fimmtánda ber upp á helgi. Allar umsóknir sem berast fyrir 10. maí og 10. nóvember eru teknar til afgreiðslu.
- Greitt er úr sjóðnum gegn afhendingu frumrits kvittunar. Á kvittun skal koma fram hver er námskeiðshaldari, námskeiðstími, ásamt nafni og kennitölu þess sem sækir um styrkinn.
- Ekki er greitt fyrir námskeið meira en ár aftur í tímann.
Stjórn Lífeyrisdeildar SFR áskilur sér rétt til breytinga á reglum þessum án fyrirvara.
Athugið að rangar eða illa útfylltar umsóknir geta tafið afgreiðslu styrkbeiðna.

