Beint á leiðarkerfi vefsins

Samþykktir Lífeyrisþegadeildar

Samþykktir Lífeyrisdeildar SFR

1. gr.
Rétt til aðildar að Lífeyrisdeild innan SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu hefur lífeyrisrétthafi samkvæmt lögum um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, enda hafi hann verið félagi í SFR er hann lét af störfum. Sama rétt eiga þeir sjóðfélagar sem njóta makalífeyris úr sjóðnum vegna fráfalls félagsmanns.

2. gr.
Deildin starfar í samræmi við ákvæði félagslaga SFR og samkvæmt gildandi samþykktum.

3. gr.
Viðfangsefni deildarinnar skulu vera;

  • að gæta í hvívetna hagsmuna félagsmanna, m.a. með því að fylgjast með þeim breytingum sem verða á skipan starfa í launaflokka og halda skrá um alla þá er rétt eiga til aðildar að deildinni,
  • að halda uppi kynningar- og félagsstarfi með deildarfélögum, þar á meðal ferðalögum innanlands og utan,
  • að vinna að því að deildarfélögum bjóðist fjölbreytt tækifæri, þar með talið að auðvelda þeim sjálfsnám og annað það sem styrkir einstaklinga og eflir andann.

4. gr.
A) Stjórn félagsins skipa sjö menn, formaður og sex meðstjórnendur, er skulu kosnir úr hópi fullgildra félagsmanna á aðalfundi til tveggja ára í senn. Formann skal kjósa sérstaklega en sex meðstjórnendur skulu kosnir í einu lagi. Stjórnin kýs úr sínum hópi varaformann, ritara og gjaldkera. 

B) Stjórnarmönnum er ekki heimilt að sitja samfellt í stjórn lengur en þrjú kjörtímabil. Ekki má sami maður gegna störfum formanns lengur enn þrjú kjörtímabil samfellt. Þótt formaður hafi setið í stjórn félagsins hefur það engin áhrif á þann tíma sem honum er heimilt að gegna formennsku.

C) Formaður fer með umboð deildarinnar til setu á þeim fundum SFR sem ákvæði eru um í 30. gr. félagslaga. Varamaður hans skal valinn úr hópi stjórnarmanna. Á aðalfundi skal einnig kjósa tvo skoðunarmenn ársreikninga.

5. gr.
Stjórnarfundi skal halda að boði formanns eða samkvæmt ákvörðun stjórnar um reglulega fundardaga. Fundir eru lögmætir ef minnst 4 mæta til fundar. Deildarfundi skal boða með auglýsingu í SFR-blaðinu þegar því verður við komið eða með bréflegri tilkynningu til deildarfélaga. Leitast skal við að ákveða fyrirfram allt funda- og félagsstarf deildarinnar um ákveðið tímabil í senn og tilkynna það í eitt skipti fyrir öll. Bóka skal gerðir allra funda deildarinnar.

6. gr.
Á tímabilinu 1. mars til 15. maí skal boða til aðalfundar deildarinnar með minnst 3ja vikna fyrirvara. Eftirfarandi eru sérstök verkefni aðalfundar:

  1. Stjórn deildarinnar gefur skýrslu um starfsemina á síðastliðnu ári.
  2. Lagðir fram til samþykktar endurskoðaðir reikningar deildarinnar fyrir síðastliðið ár.
  3. Gerð grein fyrir störfum og reikningum endurmenntunarsjóðs
  4. Tekin ákvörðun um tillögur til breytinga á samþykktum deildarinnar
  5. Kosið í stjórn
    1. Kosning formanns
    2. Kosning sex meðstjórnenda
  6. Kosnir tveir skoðunarmenn félagsreikninga.
  7. Önnur mál.

7. gr.
Samþykktum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og þarf 2/3 greiddra atkvæða til þess að breyting öðlist gildi og samþykki stjórnar SFR. 

Samþykktum hefur verið breytt á aðalfundi Lífeyrisdeildar SFR 2005 og 2012.

Ákvæði til bráðabirgða: 

Við breytingar á þessum samþykktum, grein 4, er verið að tryggja endurnýjun í stjórn LSFR og öðlast greinin því strax gildi með afturvirkni. Þó með þeirri aðlögun að allir sem eru búnir að vera samfellt í stjórn í 6 ár eða skemur geta boðið sig fram í stjórn á aðalfundi LSFR 2012. Frá og með þeim tíma byrjar útskiptareglan að telja.


Slóðin þín:

Um SFR » Lífeyrisþegadeild » Samþykktir lífeyrisþegad.