Beint á leiðarkerfi vefsins

Lífeyrisþegadeild

Þorrablót LSFR

Árlegt þorrablót Lífeyrisþegadeildar verður haldið laugardaginn 11. febrúar næstkomandi kl. 12:00 að Grettisgötu 89, 1 hæð. Verð kr. 3.000,- pr. mann og er félögum í LSFR velkomið að taka með gesti.

Tilkynna þarf þátttöku hér eða á skrifstofu SFR í s. 525-8340 fyrir 8. feb.nk.

Sparidagar eldri borgara á Hótel Örk

Hótel Örk býður nú í 23. sinn upp á sparidaga fyrir eldri borgara í sveitasælu með reyndri dagskrárstjórn dagana 11.-16. mars 2012, en gestir víðsvegar af landinu hafa notið þar fjölbreyttrar dagskrár í fallegu umhverfi. 

Vinsamlega pantið hér sem fyrst eða á skrifstofu SFR í síma 525-8340.

 

Ert þú að fara á lífeyrir?

Innan SFR er sérstök deild fyrir þá sem látið hafa af störfum en vilja áfram vera virkir félagar. Þeir sem hafa hug á að vera skráðir í lífeyrisþegadeildina verða að óska sérstaklega eftir því við skrifstofu SFR. Rétt til aðildar eiga þeir félagsmenn sem verða elli- eða lífeyrisþegar samkvæmt lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, enda hafi þeir verið félagar í SFR er þeir létu af störfum.  Meginviðfangsefni deildarinnar eru að:

  • Gæta í hvívetna hagsmuna lífeyrisþega, m.a. með því að fylgjast með þeim breytingum sem verða á skipan starfa í launaflokka og halda skrá um alla þá er rétt eiga til aðildar að deildinni.
  • Halda uppi kynningar- og félagsstarfi með deildarfélögum.
  • Vinna að því að sköpuð verði sem fjölbreyttust starfsaðstaða fyrir lífeyrisþega, þar með talið að auðvelda lífeyrisþegum sjálfsnám.

LSFR_stjorn_mars2011Núverandi formaður deildarinnar er Guðmundur Elvar Eiríksson og meðstjórnendur eru þau Bjarndís R. Júlíusdóttir ritari, Elín Brimdís Einarsdóttir, Guðmundur R. Karlsson gjaldkeri, Haukur Ársælsson, Kristrún B. Jónsdóttir varaformaður, Olgeir Möller og Ragnar Ólafsson.

Stjórnarfundir eru haldnir einu sinni í mánuði, nema yfir sumartímann, og fréttabréf er gefið reglulega út. Fastir liðir í starfi deildarinnar eru sviðaveisla í október, jólaföndur í desember, þorrablót í lok janúar, aðalfundur í apríl og sumarferð um Jónsmessu.


Slóðin þín:

Um SFR » Lífeyrisþegadeild
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti