Beint á leiðarkerfi vefsins

Jafnrétti

Óskað eftir launaviðtali

Í tilefni af 24. október 2011, kvennafrídeginum svokallaða, hvetur SFR félagskonur sérstaklega til að óska eftir launaviðtali og að afneita launaleynd (sjá grein um launaleynd). Þetta gerir félagið með því að senda öllum konum í félaginu bréf, en bréfið kemur í kjölfar þess að launakönnun ársins 2011 leiddi í ljós að launamunur kynjanna er að aukast eftir að hafa verið á niðurleið á árunum 2009 og 2010.  Sjá bréf til kvenna hér.

Hér má nálgast upplýsingar um launaviðtöl og launakönnun:

Könnunin leiddi í ljós að konur í fullu starfi eru að jafnaði með 24% lægri laun en karlar í fullu starfi. Meðalheildarlaun karla voru rúmar 394 þúsund krónur en meðalheildarlaun kvenna tæpar 301 þúsund krónur. Þetta þýðir að þegar tekið hefur verið tillit til aldurs, vinnutíma, starfsaldurs, starfsstéttar, menntunar og vaktaálags stendur eftir 13,2% óútskýrður kynbundinn launamunur.

Einnig hefur félagið sent öllum forstöðumönnum bréf þar sem vakin er athygli á að launamunur er að aukast og óskað er eftir því að farið verði gaumgæfilega yfir launasetningu í stofnuninni. Skoða þurfi sérstaklega m.a. hvernig launaþróun hefur verið í kvenna- og karlastéttum innan stofnunar undanfarin misseri. Ef í ljós komi ómálefnalegur launamunur þarf lögum samkvæmt að taka á honum með viðeigandi hætti.  Sjá bréf til forstöðumanna hér.

 


SFR lætur sig jafnréttismál varða og hefur til að mynda mælt launamun kynja í launakönnun undanfarin 5 ár. Þá hélt félagið ráðstefnuröð um jafna stöðu kynjanna í tilefni af 70 ára afmæli félagsins, og var ráðstefnuröðin haldin árið 2010.

Hjá SFR hefur nú tekið til starfa sérstök jafnréttisnefnd, en hún var kosin á trúnaðarmannaráðsfundi SFR haustið 2010. Henni er ætlað að fylgja stefnu SFR í jafnréttismálum eftir með því að vera vakandi og sofandi yfir jafnréttisumræðunni í samfélaginu. Einnig er henni ætlað að vakta þá daga sem snúa sérstaklega að jafnréttismálum og þátttöku SFR í uppákomum tengdum jafnréttismálum. Þá er hlutverk nefndarinnar að taka þátt í og hvetja til umræðu um jafnréttismál innan félags sem utan, rýna í launakönnun SFR og taka púlsinn á launamun kynjanna, svo eitthvað sé nefnt.

Í jafnréttisnefnd sitja:

Augustin Dufatanye, Málefni fatlaðra, Reykjavíkurborg
Elvar Ástráðsson, Veðurstofa Íslands
Jóhanna Sóley Gunnarsdóttir, Landspítali
Óskar Þór Vilhjálmsson, Háskólinn á Akureyri
Sylvía Valgeirsdóttir, Landspítali

Með nefndinn starfar Sólveig Jónasdóttir, upplýsingafulltrúi SFR, netfangið hennar er solveig@sfr.is ef þú vilt koma ábendingum um jafnréttismál á framfæri við félagið.

Hér eru upplýsingar um jafnréttismál:


Slóðin þín:

Um SFR » Jafnrétti