Beint á leiðarkerfi vefsins

Framtíðarsýn SFR

Framtíðarsýn SFR

SFR er stéttarfélag í almannaþjónustu. Mikilvægt er fyrir SFR að vera virkt í allri þjóðfélagsumræðu, bæði í gegnum BSRB og í eigin nafni. Forysta SFR þarf að auka slagkraft félagsins um leið og unnið er að því að efla samstöðu félagsmanna, um hlutverk og meginmarkmið félagsins.
SFR á að vera kraftmikið félag þar sem ríkir í senn mikil virkni og góð samstaða.

Meginverkefni SFR hér eftir sem hingað til lúta að kjara- og réttindamálum. SFR þarf að horfa til vinnustaðarins í æ ríkari mæli. Vinnustaðurinn þarf að uppfylla öll þau vinnuverndarsjónarmið sem á að gera hann að manneskjulegum vinnustað.
SFR á að stuðla að góðu samstarfi milli trúnaðarmanna og atvinnurekenda.
SFR skal leggja ríka áherslu á að jafna tekjubilið í samfélaginu og að bæta laun almennt.

Um innri mál félagsins er bent á að styrkja þurfi samskipti og tengsl forystunnar við almenna félagsmenn, til dæmis með morgunverðarfundum og heimsóknum á vinnustaði.
Auka þarf félagslega virkni og fá fleira ungt fólk til starfa. Þá þarf að efla trúnaðarmannakerfið og gera félagið aðgengilegra fyrir háskólamenntað fólk.

Megin áherslur eru:

  • Að stuðla að bættum kjörum félagsmanna, þar sem horft er bæði til tekna og útgjalda. 
  • Að stuðla að bættu vinnuumhverfi félagsmanna.
  • Styrkja tengsl forystu og félagsmanna. 
  • Auka samstöðu meðal félagsmanna SFR. 
  • Að SFR sé ávallt virkt í þjóðfélagsumræðunni. 
  • Að sporna við vaxandi tekjubili í þjóðfélaginu. 
  • Að sporna við einkarekstri og einkavæðingu í almannaþjónustu og skal hún vera í samfélagslegri eigu. 
  • Að SFR stuðli að fjölskylduvænni vinnumenningu og jafnrétti á vinnustöðum meðal annars með því að stytta vinnuvikuna og þá sérstaklega hjá vaktavinnufólki.
  • Að SFR vinni gegn kynbundnum launamun og að sjónarmið beggja kynja komi ávallt fram.
  • Að SFR vinni að því öllum verði tryggt öruggt húsnæði og stuðli að því að stjórnvöld auki fjölbreytileika í húsnæðismálum og að kerfið verði réttlátt og þjóni þörfum samfélagsins.
  • Að SFR stuðli að umhverfisvernd, aukinni umræðu og ábyrgð í loftslagsmálum og sjálfbærri þróun.

Stjórn félagsins skal á hverjum tíma setja fram sínar áherslur um framgang framtíðarsýnarinnar.

Framtíðarsýnin var samþykkt á aðalfundi SFR 14. mars 2013.


Slóðin þín:

Um SFR » Framtíðarsýn SFR