Beint á leiðarkerfi vefsins

Ályktanir aðalfundar SFR 2008

Aðalfundur SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu 
samþykkti eftirfarandi ályktanir laugardaginn 29. mars 2008:

ÁLYKTUN UM ALMANNAÞJÓNUSTU 
Aðalfundur SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu bendir á, að almannaþjónustan er ein af grunnstoðum öflugs velferðarsamfélags. Grundvöllur jafnaðar og réttlætis fyrir alla þegna samfélagsins. Almannaþjónustan getur einungis gegnt hlutverki sínu ef í hana er blásið lífi og henni leyft að þroskast og dafna þannig að hún skili bættri þjónustu til almennings. Starfsmenn hennar eru lífæð þjónustunnar og er það því krafa SFR að í komandi kjarasamningum verði hlúð að þessum mikilvæga þætti samfélagsins. Án  hæfra og áhugasamra starfsmanna standa stoðir samfélagsins völtum fótum.

Mikilvægur þáttur í því að efla almannaþjónustuna er að bæta kjör þeirra sem við hana starfa og þar með að styrkja stoðir hennar  til frambúðar.

Markaðsvæðing - hugmyndafræði hins frjálsa markaðar og aukin kostnaðarþátttaka almennings stríðir gegn grundvallarmarkmiðum almannaþjónustunnar og lýtur öðrum lögmálum. SFR vill því sporna gegn þeirri þróun sem virðist vera að aukast í  íslensku samfélagi í dag og hvetur ríki og sveitarfélög til að hverfa frá umbyltingar- og  úthýsingar stefnunni í almannaþjónustu.

ÁLYKTUN UM KJARAMÁL
Misrétti í launum hefur aukist í samfélaginu á undanförnum árum. Bilið á milli þeirra sem hafa hæstu launin og þeirra sem hafa lægstu launin hefur verið að aukast. Aðalfundur SFR telur mikilvægt að horft verði til þess við gerð næstu kjarasamninga.

Kjarakannanir sem gerðar hafa verið hafa sýnt að launamunur milli opinberra starfsmanna og starfsmanna á almennum markaði er að meðaltali 20% en í sumum störfum nær þessi munur allt að 39% þar sem hann er mestur. Þessi mikli launamunur á íslenskum vinnumarkaði er með öllu ólíðandi og verður að leiðréttast. Afleiðingar af þessari launaskekkju birtist m.a. í að víða er ríkjandi mannekla og við það skapast neyðarástand á opinberum stofnunum.

Viðurkennt er að laun umönnunarstétta eru allt of lág og þarf að leiðrétta þau sérstaklega. Ætla má að það ríki sátt um það, miðað við yfirlýsingar núverandi stjórnarflokka við síðustu alþingiskosningar. En það eru fleiri en þessar stéttir sem þarf að horfa til. Stórir hópar kvenna sem vinna við skrifstofustörf hjá ríkinu búa við mun lægri laun en almennt gerist á vinnumarkaði. Aðalfundur SFR leggur áherslu á að með því að bæta laun þessara stétta, er í leiðinni verið að vinna gegn þeim kynbundna launamun sem viðgengst hjá ríkinu.

ÁLYKTUN UM EFNAHAGS- OG SKATTAMÁL
SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála í landinu og telur afar brýnt að ráðamenn grípi í taumana þannig að hægt sé að koma á efnahagslegum stöðugleika. Geigvænleg þensla og jafnvægisleysi undanfarinna ára hefur skapað það ástand sem nú ríkir. Ísland trónir nú á toppnum i Evrópu með 15% stýrivexti og stöðuga verðbólgu á bilinu 6-8%. Gengissveiflur eru miklar og viðskiptahalli í sögulegu hámarki.

Nýleg skýrsla OECD sýnir vaxandi misskiptingu í þjóðfélaginu. Skattar hafa aukist á barnafjölskyldur, lágtekjufólk og einstæða foreldra en á sama tíma greiða þeir tekjuhærri hlutfallslega lægri álögur. SFR leggur áherslu á að dreifa þurfi skattbyrðinni með sanngjarnari hætti og nota skattkerfið sem jöfnunartæki.

Aðalfundur SFR beinir því til stjórnvalda að herða róðurinn gegn undanskotum frá skatti sem því miður hafa viðgengist á Íslandi of lengi. Allir landsmenn eiga að sitja við sama borð og borga það sem þeim ber.

Skuldsetning heimilanna er gríðarleg miðað við ráðstöfunartekjur fólks . Kaupmáttur launa þeirra sem minnst mega sín er að dragast saman. Hagstjórn undanfarinna ára hefur valdið þessu ófremdar ástandi og krefst fundurinn að  ríkisstjórnin axli þegar ábyrgð á ástandi efnahagsmála og leggi fram raunhæfar tillögur til úrbóta.

ÁLYKTUN UM UMHVERFISMÁL - LOFTSLAGSMÁL
Aðalfundur SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu telur umhverfismálin einn mikilvægasta málaflokk samtímans. Það ber að leggja ríka áherslu á ábyrgð hvers og eins í umgengni við náttúruna, hvort sem um er að ræða stjórnvöld, fyrirtæki eða einstaklinga. Mikilvægt er að atvinnulífið þróist inn á umhverfisvænar brautir og efla þarf fræðslu á sviði umhverfismála. Sjálfbær nýting náttúrunnar er grundvöllur alls og tryggir að ekki sé gengið á arf komandi kynslóða.

Íslensk náttúra er viðkvæm fyrir loftslagsbreytingum og sérstaða Íslands hvað líffræðilegan fjölbreytileika varðar er í hættu vegna þeirra. Því er mikilvægt að Ísland taki virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi á sviði loftslagsmála. Við verðum að axla ábyrgð í losun gróðurhúsalofttegunda og hvetur SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu opinbera aðila til að stuðla að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, og einn mikilvægur liður í því er að bæta almannasamgöngukerfið í landinu.

Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst árin 2005-2015 áratug vatnsins. Telst aðgangur að hreinu, ódýru vatni til grundvallarmannréttinda. U.þ.b 3 milljónir manna, aðallega börn, létust árið 2007 af sjúkdómum sem tengjast mengun vatns og 17% af íbúum heimsins vantar aðgang að hreinu vatni og viðunandi hreinlætisaðstöðu.  Breytingar á veðurfari sökum loftlagsbreytinga gera þessa stöðu enn verri og bitnar hún á þeim sem eru veikastir fyrir. SFR telur að stéttarfélög eigi að standa framarlega í baráttunni gegn þessari ógn sem stafar af samfélagi okkar.  Verndun  loftslagsins og baráttan um hreint vatn er barátta okkar allra, hún er réttinda varsla þeirra sem eiga sér ekki málsvara.


Slóðin þín:

Um SFR » Aðalfundur » Ályktanir 2008