Beint á leiðarkerfi vefsins

SFR.is

SFR.is

Um SFR

Skrifstofa SFR er opin virka daga frá kl. 9:00-16:00.

SFR er stéttarfélag í almannaþjónustu og er félagssvæði þess allt landið. Félagið skiptist í tvo hluta, opinberan hluta og almennan hluta.

  • Til opinbera hlutans teljast:
    • einstaklingar í þjónustu ríkisins sem ekki eiga aðild að öðru stéttarfélagi,
    • stéttarfélög starfsmanna, og teljast þá allir meðlimir viðkomandi stéttarfélags félagsmenn SFR, enda eigi félagið aðild að SFR,
    • einstaklingar í vinnu hjá sjálfseignarstofnunum sem starfa í almannaþágu samkvæmt lögum.
  • Til almenna hlutans teljast einstaklingar sem vinna hjá fyrirtækjum sem starfa í almannaþágu og voru áður ríkis- eða sjálfseignarstofnanir.

SFR var stofnað 17. nóvember 1939. Stofnfélagar voru 142, en félagsmenn eru nú um 7.700. Í fyrstu voru félagsmenn einkum karlar í skrifstofustörfum sem flestir bjuggu á höfuðborgarsvæðinu. Nú koma félagsmenn úr mörgum starfsgreinum, með afar fjölbreytta menntun og ólíkan bakgrunn, og er nú svo komið að konur eru í miklum meirihluta (70% félagsmanna þann 23. júlí 2004).

Frá upphafi hefur helsta verkefni SFR verið að berjast fyrir bættum kjörum og atvinnuöryggi félagsmanna. Á sama tíma hefur baráttan fyrir margs konar réttindamálum einkum farið fram á vettvangi heildarsamtakanna, BSRB.

Samkvæmt lögum SFR verða þeir sem taka laun eftir kjarasamningi þess sjálfkrafa félagsmenn og greiða gjald til þess. Ef viðkomandi vill ekki vera í félaginu getur hann sagt sig úr því, en þarf eftir sem áður að greiða gjald til þess samkvæmt lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna.


Á döfinni

Til félagsmanna

3. September 2010

Náms- og starfsráðgjöf fyrir alla félagsmenn

Fræðslusetrið Starfsmennt býður félagsmönnum aðildarfélaga BSRB upp á náms- og starfsráðgjöf, þeim að kostnaðarlausu. Ráðgjöfin nýtist fólki á öllum aldri til að viðra hugmyndir sínar um nám og starfsþróun. Sjá nánar HÉR.

8. Júní 2010

Fræðsla um svepparíkið

Skráning hafin á námskeið um svepparíkið sem haldið verður síðsumar 2. og 4. september...

12. Maí 2010

Jónsmessuferð Lífeyrisþegadeildar SFR

Uppbókað er í Jóns-messuferð LSFR, en að þessu sinni verður farið til Stykkishólms og í siglingu...

 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré English