Beint á leiðarkerfi vefsins

Réttur trúnaðarmanna til að sækja fundi og námskeið

Almennt er það ekki vandkvæðum bundið að trúnaðarmenn sæki námskeið og fundi tengd starfi hans, enda tilkynnir trúnaðarmaður yfirmanni stofnunar með eðlilegum fyrirvara um slíkar fjarvistir. Það er allra hagur að trúnaðarmenn séu vel upplýstir og þjálfaðir til að gegna þeim skyldum sem samstarfsmenn hafa kosið þá til. Mismunandi reglur gilda um hversu langan tíma á almanaksári trúnaðarmenn geta nýtt í námskeiða- og fundasókn.

Engar skilgreiningar eru í samningum við Reykjavíkurborg og Isavia heldur byggt á gagnkvæmum skilning á því að trúnaðarmenn verði að fá tækifæri til að sinna skyldum sínum. Hér á eftir fylgja þau ákvæði og samningar sem gerðir hafa verið fyrir trúnaðarmenn hjá mismunandi samningsaðilum.

Ríki:

Fyrir þá trúnaðarmenn sem starfa hjá ríkinu, sjálfseignarstofnunum og SFH þá byggir rétturinn á samkomulagi við fjármálaráðuneytið. Trúnaðarmönn­um er samkvæmt því heimilt að sækja þing, fundi, ráðstefnur og námskeið á vegum stéttarfélagsins í allt að eina viku einu sinni á ári án skerðingar á reglubundnum launum, en mörg dæmi eru um að trúnaðarmenn hafi fengið að nýta meiri tíma en þetta.

Sveitarfélögin (viðauki með kjarasamningi sem var undirritaður 6. júlí 2011) :

Viðauki II - Samkomulag um trúnaðarmenn

3. grein Trúnaðarmönnum skal heimilt að sækja þing, fundi og ráðstefnur á vegum stéttarfélagsins í allt að eina viku einu sinni á ári án skerðingar á reglubundnum launum. Þeir sem kjörnir eru í samninganefnd fá leyfi til að sinna því verkefni án skerðingar á reglubundnum launum.

Í öllum framangreindum tilvikum skal tilkynna yfirmanni stofnunar með eðlilegum fyrirvara um slíkar fjarvistir.

Trúnaðarmenn geta sótt nám í Trúnaðarmannaskóla BSRB án skerðingar á 3. gr. samkomulags um trúnaðarmenn (3x5 dagalotur), sbr. bókun 4 með kjarasamningi aðila undirrituðum 29. nóvember 2008.

RARIK og Matís (úr kjarasamningum):

13.8  Trúnaðarmannanámskeið
13.8.1 Trúnaðarmönnum á vinnustað skal gefinn kostur á að sækja námskeið sem miða að því að gera þá hæfari í starfi.
13.8.2 Hver trúnaðarmaður hefur rétt á að sækja eitt námskeið á ári. Þeir sem námskeiðin sækja skulu halda dagvinnutekjum í allt að eina viku á ári enda séu námskeiðin viðurkennd af samningsaðilum. Í fyrirtækjum þar sem starfa fleiri en 15 starfsmenn skulu trúnaðarmenn halda dagvinnutekjum í allt að tvær vikur á fyrsta ári. Þetta gildir um einn trúnaðarmann á ári í hverju fyrirtæki séu starfsmenn 5-50 en tvo trúnaðarmenn séu starfsmenn fleiri en 50.

Fríhöfnin (úr kjarasamning):

14.7. Trúnaðarmannanámskeið og fundir
Trúnaðarmönnum á vinnustað skal gefinn kostur á að sækja trúnaðrmannaráðsfundi eða námskeið sem SFR boðar. 

Hver trúnaðarmaður hefur rétt á að sækja eitt námskeið á ári.  Þeir sem námskeiðin sækja skulu halda launum í allt að eina viku á ári enda séu námskeiðin viðurkennd af samningsaðilum.  Í fyrirtækjum þar sem starfa fleiri en 15 starfsmenn skulu trúnaðarmenn halda föstum launum í allt að tvær vikur á fyrsta ári.  Þetta gildir um einn trúnaðarmann á ári í hverju fyrirtæki séu starfsmenn 5 - 50 en tvo trúnaðarmenn séu starfsmenn fleiri en 50.


Slóðin þín:

Trúnaðarmenn » Trúnaðarmannafræðsla » Réttur til að sækja fundi/námskeið