Beint á leiðarkerfi vefsins

Trúnaðarmannafræðsla BSRB/FA - nánar

Námið er í sjö þrepum. Í fyrsta hlutanum er lögð höfuðáhersla á störf og stöðu trúnaðarmannsins og samskipti á vinnustað. Í öðru þrepi er starfsemi stéttarfélaga tekin fyrir, vinnuréttur, lestur launaseðla og launaútreikningur. Í þriðja þrepi er áhersla lögð á tryggingar og kjarasamninga, vinnueftirlit, vinnuvernd og starfsendurhæfingu, ásamt því að haldið er áfram með vinnurétt þar sem frá var horfið í 2. þrepi. Í fjórða þrepi er áhersla á sjálfstyrkingu, stjórnunarstíla og leiðtoga og er líka fjallað um einelti.  Í fimmta þrepi er á dagskrá hagfræði og samningatækni ásamt inngangi að ræðumennsku. Í sjötta þrepi er fyrri dagurinn helgaður samtalstækni og íhlutun, en seinni dagurinn rökfræði og áróðri. Í sjöunda og síðasta þrepinu er síðan farið yfir skipuleg vinnubrögð, einnig er kynning á náms- og starfsráðgjöf og fjallað um námshvatningu á vinnustað. Námskeiðin eru kennd í BSRB - húsinu Grettisgötu 89.

Trúnaðarmannanám BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu byggir á námsskrám sem Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur unnið fyrir Félagsmálaskólann.  Námsskrárnar heita „Trúnaðarmannanámskeið I" og „Trúnaðarmannanámskeið II" og samanlagt eru þær 142 kennslustundir sem Menntamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi til styttingar náms í framhaldsskóla allt að 11 einingum vali, á kjörsviði og/eða til almennra greina eftir styrkleika viðkomandi.

Námsskrárnar eru gefnar út af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins með það að markmiði að auka skilvirkni og gæði náms, gera nám gagnsærra og auðvelda styttingu á framhaldsskólanámi. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins gerir kröfur til þeirra sem heimild fá til að nota námsskrá þessa um að þeir framfylgi formlegu gæðakerfi sem FA þróar og viðurkennir. Einnig að framkvæmdaraðili framfylgi skilgreindum kennslufræðilegum kröfum.

Um er að ræða nýtt form trúnaðarmannafræðslu sem tekið var upp nú veturinn 2008-2009 en það eru metnaðarfull og öflug trúnaðarmannanámskeið skipulögð af BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu (FA). Námskeiðin eru sjö talsins og byggjast upp á þrepakerfi.  Þegar trúnaðarmaður hefur lokið þrepi 1 getur hann tekið þrep 2 og svo koll af kolli og eru trúnaðarmenn hvattir til að sækja BSRB/FA námskeiðin. SFR og STRV mun einnig bjóða trúnaðarmönnum upp á þriggja daga grunnnámskeið þar sem farið verður yfir starfssemi stéttarfélaganna, kjarasamningana og lífeyrismál ásamt því að lögð verður áhersla á leiðtogaþjálfun.  

Skráning og nánari upplýsingar á vef BSRB.


Slóðin þín:

Trúnaðarmenn » Trúnaðarmannafræðsla » Nánar um BSRB/FA nám
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti