Trúnaðarmannafræðsla
Nám í boði fyrir trúnaðarmenn SFR
SFR leggur ríka áherslu á að bjóða trúnaðarmönnum sínum upp á fræðslu þannig að þeir geti sinnt þeim verkefnum sem trúnaðarmönnum ber.
Fyrst ber að nefna þriggja daga námskeið SFR og STRV sem er góður grunnur fyrir starf trúnaðarmanna. Síðan er trúnaðarmannanám BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu (FA) alls sjö námskeið, en þau eru kennd í 3 og 2 daga til skiptis og má meta til allt að 11 einingum á framhaldsskólastigi. Þá hefur SFR boðið trúnaðarmönnum upp á fræðslumorgna sem haldnir eru á undan fundum trúnaðarmannaráðs.
Námskeið SFR og STRV - Næst verður boðið upp á námskeið á haustönn 2013
Trúnaðarmönnum SFR er boðið upp á sameiginlegt námskeið SFR og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Þetta eru grunnnámskeið sem standa í þrjá daga. Á þessu námskeiði er farið yfir starfssemi stéttarfélaganna, kjarasamningana og lífeyrismál. Auk þess er lögð áhersla á leiðtogaþjálfun þar sem Þórkatla Aðalsteinsdóttir og Einar Gylfi Jónsson sálfræðingar leiðbeina og þjálfa fulltrúa. Á haustönn 2013 bjóða SFR og STRV upp á 1 námskeið:
Trúnaðarmannanám BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu
Námið er í sjö þrepum. Í fyrsta hlutanum er lögð höfuðáhersla á störf og stöðu trúnaðarmannsins og samskipti á vinnustað. Í öðru þrepi er starfsemi stéttarfélaga tekin fyrir, vinnuréttur, lestur launaseðla og launaútreikningur. Í þriðja þrepi er áhersla lögð á tryggingar og kjarasamninga, vinnueftirlit, vinnuvernd og starfsendurhæfingu, ásamt því að haldið er áfram með vinnurétt þar sem frá var horfið í 2. þrepi. Í fjórða þrepi er áhersla á sjálfstyrkingu, stjórnunarstíla og leiðtoga og er líka fjallað um einelti. Í fimmta þrepi er á dagskrá hagfræði og samningatækni ásamt inngangi að ræðumennsku. Í sjötta þrepi er fyrri dagurinn helgaður samtalstækni og íhlutun, en seinni dagurinn rökfræði og áróðri. Í sjöunda og síðasta þrepinu er síðan farið yfir skipuleg vinnubrögð, einnig er kynning á náms- og starfsráðgjöf og fjallað um námshvatningu á vinnustað. Námskeiðin eru kennd í BSRB - húsinu Grettisgötu 89.
Sjá nánar hér hvernig námsþættir skiptast í þrep. Sjá myndir frá trúnaðarmannanámskeiðunum hér.
Skráning er í gegnum skráningarkerfi á vef BSRB. Menn þurfa að búa sér til sitt eigið lykilorð við skráningu. Upplýsingar veitir skrifstofa BSRB í síma 525 8300.
Nám BSRB og FA í boði veturinn 2012 - 2013:
- Trúnaðarmannanámskeið I - 1. þrep, 15.10.2012 - 17.10.2012
- Trúnaðarmannanámskeið I - 2. Þrep, 12.11.2012 - 13.11.2012
- Trúnaðarmannanámskeið I - 3. þrep, 26.11.2012 - 28.11.2012
- Trúnaðarmannanámskeið I - 4. þrep, 21.1.2013 - 22.1.2013
- Trúnaðarmannanámskeið II - 5. þrep, 13.2.2013 - 15.2.2013
- Trúnaðarmannanámskeið II - 6. þrep, 11.3.2013 - 12.3.2013
- Trúnaðarmannanámskeið II - 7. þrep, 8.4.2013 - 9.4.2013
Trúnaðarmannanámskeið á sjö stöðum á landinu
Mikilvægt er að félagsleg fræðsla trúnaðarmanna sé sem allra best og allir trúnaðarmenn fái tækifæri til að sækja trúnaðarmannanámskeið. Á síðasta misseri var boðið uppá sameiginleg trúnaðarmannanámskeið fyrir öll stéttarfélög innan ASÍ og BSRB. Mæltist það vel fyrir og voru þau vel sótt og því hefur verið ákveðið að hafa framhald á og kenna bjóða uppá áframhaldandi námskeið á sjö stöðum á landinu, á vorönn 2013.
Um er að ræða þrep 2 úr námsskránni, Trúnaðarmannanámskeið I. Auk þess verður boðið uppá fyrri hlutann af þrepi 1 á tveimur stöðum, Vestfjörðum og á Suðurnesjum.
Námskeiðin verða sem hér segir:
Þrep 1:
- 16. - 18.janúar - Reykjavík - Sætúni 1, 4. hæð
- 4. - 6. febrúar - Norðurland eystra - Lionssalurinn Skipagötu 14, Akureyri
Þrep 3:
- 6. – 8. febrúar Reykjavík - Sætúni 1, 4. hæð
- 11. - 13. febrúar Suðurland – Fundarsalur Eflingar, Austurmörk 2, Hveragerði
- 18. - 20. febrúar Vesturland - Fundarsalur Stéttarfélags Vesturlands, Borgarnesi
- 11. - 13. mars Norðurland eystra - Lionssalurinn Skipagötu 14, Akureyri
- 18. - 20. mars Norðurland vestra – Langamýri Skagafirði
- 3. - 5. apríl Austurland - Hótel Hérað Egilsstöðum
- 17. - 19. apríl Vestmannaeyjar - Viska - símenntunarmiðstöð v/Strandveg
Skráning þarf að hafa borist 10 dögum fyrir áætlaðan námskeiðsdag á heimasíðu skólans www.felagsmalaskoli.is.
Miðað er við að lágmarki 10 þátttakendur annars verður námskeiðið fellt niður.
Fræðslumorgnar trúnaðarmanna
Dagskrá fræðslumorgna er auglýst í tengslum við fundi trúnaðarmanna. Á fræðslumorgnunum er það haft að leiðarljósi að taka fyrir efni sem mest brennur á hverju sinni. Sjá nánar dagskrá og tímar HÉR.
Réttur trúnaðarmanna til að sækja námskeið á vinnutíma.
Reglur um ferða- og dvalarkostnað fyrir trúnaðarmenn utan af landi.
Kennsla fer fram að Grettisgötu 89, 1. hæð, bæði fyrir BSRB námið og SFR/St.Rv. námskeiðið.
Námið er trúnaðarmönnum að kostnaðarlausu.

