Beint á leiðarkerfi vefsins

Tengslanet trúnaðarmanna

Á stefnuskrá SFR undanfarinna ára hefur verið að styrkja trúnaðarmannakerfi  félagsins. Trúnaðarmenn eru mjög mikilvægur hlekkur í starfsemi félagsins þar sem þeir tengja forystuna og skrifstofu félagsins við félagsmenn úti á hverjum vinnustað. Því var ákveðið að koma upp tengslanetum trúnaðarmanna sem eru alls 19, sjá skiptingu þeirra og hvaða trúnaðarmenn eru stýrimenn þeirra hér

Tengslanetið er hugsað sem vettvangur trúnaðarmanna á hverju svæði eða innan stórra stofnana til að efla samvinnu þeirra og koma á persónulegum tengslum. Þetta er gert til að styrkja hvern og einn í starfi sínu. Trúnaðarmaður sem er einn á sinni stofnun hefur þá möguleika til að leita til tengslanetsins þegar honum vantar aðstoð eða upplýsingar. Eins getur netið orðið vettvangur til skoðanaskipta í minni hóp heldur en er mögulegt á fundum trúnaðarmannaráðs.

Markmið

  • Að styrkja trúnaðarmanna kerfið.
  • Að styrkja samvinnu og tengsl trúnaðarmanna sem tengjast ákveðnum stofnunum, starfssviðum eða landssvæðum.
  • Að styðja og efla trúnaðarmenn í hlutverki þeirra.
  • Að auka og efla samvinnu SFR og trúnaðarmanna.
  • Að auðvelda tengsl SFR við stofnanir og fyrirtæki félagsmanna.
  • Að styrkja samvinnu við trúnaðarmenn um land allt.
  • Að tengslanetin verði virkur vettvangur fyrir skoðanaskipti trúnaðarmanna.

Framkvæmd

  • Að skapa heildstæða umgjörð um trúnaðarmannakerfið með skipan í smærri hópa og myndun tengslaneta.
  • SFR tryggi að haldnir verði 2-3 formlegir fundir á ári með hverju tengslaneti og að ráðgjafi trúnaðarmanna sjái um utanumhald við tengslanetin.
  • Að hvert tengslanet fyrir sig fái fræðslu og upplýsingagjöf sniðið að þörfum hópsins.
  • Að hvert tengslanet skipi sér stýrimann og að ráðgjafi trúnaðarmanna haldi utan um hópana og samskipti við þá.

 Umsjónaraðili skrifstofu SFR með tengslanetunum er Alma Lísa Jóhannsdóttir. Netfang: alma@sfr.is.


Slóðin þín:

Trúnaðarmenn » Tengslanet trúnaðarmanna