Beint á leiðarkerfi vefsins

SFR.is

SFR.is

Kosning trúnaðarmanna

Kosning trúnaðarmanna SFR fyrir kjörtímabilið 2009-2011

Tilkynningu um kjör trúnaðarmanna er hægt að senda rafrænt hér.

Kjósa þarf trúnaðarmann SFR á vinnustöðum á tveggja ára fresti. Hlutverk trúnaðarmanns er bæði fjölbreytt og áhugavert. Það felst meðal annars í að gæta hagsmuna félagsmanna SFR á vinnustað, koma að gerð stofnanasamninga þar sem launaröðun er ákveðin, miðla upplýsingum milli félagsmanna og SFR, gæta þess að kjarasamningar séu virtir og aðstoða í ágreiningsmálum.

Um er að ræða gefandi starf sem felur í sér tækifæri til að bæta við sig þekkingu og reynslu á sviði starfsmannamála. Einnig gefur það innsýn í rekstur stofnunar og starfsemi stéttarfélaga. Trúnaðarmönnum býðst að sækja tvö 3ja daga þjálfunarnámskeið tengd starfinu þar sem áhersla er lögð á upplýsingamiðlun, réttindi á vinnumarkaði, kjarasamning og leiðtogaþjálfun.

Áhugasamir setji sig í samband við kjörstjórn á vinnustað sem fyrst, en kosning á að fara fram í september á oddatöluári. Trúnaðarmanni ber að skipa kjörstjórn og hengja upp auglýsingu um kosningu á áberandi stað með nöfnum kjörstjórnar. Allir félagsmenn geta boðið sig fram til trúnaðarmanns en kosning fer fram á vinnustað ef fleiri en einn eru í framboði.

SFR er stéttarfélag í almannaþjónustu með 8000 félagsmenn og hefur á að skipa um 250 trúnaðarmönnum sem saman mynda trúnaðarmannaráð, en það hittist einu sinni í mánuði yfir vetrartímann. Trúnaðarmaðurinn hefur starfsmenn og stjórn SFR til stuðnings í hlutverki sínu.

Heimilt er að kjósa trúnaðarmann á vinnustað þar sem 5 eða fleiri félagsmenn starfa. Stjórn SFR hvetur alla félagsmenn til að tilnefna og kjósa trúnaðarmann á sínum vinnustað og stuðla þannig að auknu starfsöryggi og bættum kjörum.  Á fjölmennum vinnustöðum, þar sem starfshóparnir eru dreifðir og sérgreindir, er stjórn félagsins heimilt að veita leyfi fyrir kosningu fleiri en eins trúnaðarmanns.

Kjörgögn voru send út í fyrstu viku september. Kosningu trúnaðarmanna skal lokið eigi síðar en 7. október 2009. Það er hlutverk trúnaðarmanna að sjá til þess að kjörstjórn sé skipuð. Við val hennar skal þess gætt eftir föngum að fulltrúar komi frá hinum mismunandi starfshópum stofnunarinnar. Kjörstjórn sér síðan um framkvæmd kosningarinnar samkvæmt starfsreglum trúnaðarmanna SFR. Ef aðeins einn er í framboði má líta á hann sem sjálfkjörinn, en kjörstjórn er einnig heimilt að framkvæma kosningu þrátt fyrir að einn sé í framboði.

Kjörstjórn skal leita eftir tilnefningu félagsmanna um frambjóðendur. Einnig getur hver félagsmaður gert skriflegar tillögur til kjörstjórnar Félagsmanni er skylt að gefa kost á sér til framboðs sem trúnaðarmaður nema þær ástæður hamli sem samstarfsmenn meta gildar. Eftir að hafa fengið skriflegt samþykki þeirra, sem tilnefndir hafa verið, skal kjörstjórn auglýsa kosningu með a.m.k. fimm daga fyrirvara og taka þar fram hverjir eru í framboði.

Starf trúnaðarmannsins felur í sér að:

  • Vera fulltrúi SFR á vinnustað hvað varðar framkvæmd kjarasamnings og réttargæslu félagsmanna.
  • Vera fulltrúi í samstarfsnefnd á vinnustað vegna endurskoðunar stofnanasamnings.
  • Koma upplýsingum á framfæri við starfsmenn, bæði frá stéttarfélagi og atvinnurekanda.
  • Vinna að lausn vandamála sem kunna að koma upp á vinnustað. Það getur falið í sér að:
    • Taka við athugasemdum/ábendingum samstarfsmanna.
    • Kynna sér málavexti þeirra sem málið varðar.
    • Krefjast úrbóta ef í ljós kemur að brotið er á samstarfsmanni.
    • Óska eftir aðstoð SFR ef lausn næst ekki á vinnustaðnum.
  • Fylgjast með nýráðningum og uppsögnum.
  • Sækja fundi trúnaðarmannaráðs, en í því sitja allir trúnaðarmenn SFR.
  • Sækja fræðslu trúnaðarmanna.

- Bréf vegna kosningu trúnaðarmanna

- Auglýsing vegna kosningu trúnaðarmanna

   - Fylgiskjal 1

   - Fylgiskjal 2

   - Fylgiskjal 3

Hefðbundin fræðsla trúnaðarmanna, Samstíga til framtíðar I og II, verður í boði. Námskeiðin eru haldin í húsakynnum SFR og St.Rv að Grettisgötu 89. Nánari upplýsingar um námsekiðin er að finna hér.


Á döfinni

Til félagsmanna

3. September 2010

Náms- og starfsráðgjöf fyrir alla félagsmenn

Fræðslusetrið Starfsmennt býður félagsmönnum aðildarfélaga BSRB upp á náms- og starfsráðgjöf, þeim að kostnaðarlausu. Ráðgjöfin nýtist fólki á öllum aldri til að viðra hugmyndir sínar um nám og starfsþróun. Sjá nánar HÉR.

8. Júní 2010

Fræðsla um svepparíkið

Skráning hafin á námskeið um svepparíkið sem haldið verður síðsumar 2. og 4. september...

12. Maí 2010

Jónsmessuferð Lífeyrisþegadeildar SFR

Uppbókað er í Jóns-messuferð LSFR, en að þessu sinni verður farið til Stykkishólms og í siglingu...

 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré English