Beint á leiðarkerfi vefsins

Fræðslumorgnar trúnaðarmanna

Fræðslumorgnar trúnaðarmanna eru haldnir fyrir hádegi sama dag og trúnaðarmannaráðsfundir félagsins eru haldnir og eru opnir öllum trúnaðarmönnum sem áhuga hafa á málefnunum hverju sinni. SFR hvetur trúnaðarmenn til að nýta sér þessa fræðslu sem er þeim að kostnaðarlausu.

Mikilvægt er að trúnaðarmenn skrái sig tímanlega, m.a.  til þess að hægt sé að gera ráð fyrir þeim í hádegismat sem þeim er boðið upp á í kjölfar fræðslunnar.  

Fræðslumorgnar á vorönn 2012:

Vaktavinna

Mið. 8. feb. - kl. 10 - 12:15 - Skrá mig á fræðslumorgunn

Á námskeiðinu verður fjallað um þann hluta kjarasamnings sem snýr að vaktavinnustarfsmönnum. Farið verður yfir lengd vakta, vaktskrá, breytingu á vaktskrá, vetrarfrí og bætingu, matar og kaffitíma vaktavinnufólks o.s.frv.
Leiðbeinandi: Guðrún Halldóra Sveinsdóttir, verkefnastjóri kjarasviðs SFR.

Fös. 27. apr. - Efni kynnt síðar.


BÚIÐ: 

Opinber og almennur vinnumarkaður

Mán. 17. okt. - kl. 9:15 - 12:15 - Fjallað er um tvískiptingu íslensks vinnumarkaðar, þ.e. opinberan og almennan vinnumarkað. Varpað verður ljósi á ólíka stöðu stéttarfélaganna á grundvelli laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur og á grundvelli laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Þá verður fjallað um réttindi launafólks og samanburður gerður eftir því hvort launafólk starfi á almennum eða opinberum vinnumarkaði. Markmiðið er að þátttakendur þekki megineinkenni og mismun á þessum tveimur hópum launafólks á íslenskum vinnumarkaði. Leiðbeinandi: Sonja Ýr Þorbergsdóttir, lögfræðingur BSRB.

Kynning á SFR

Fim. 1. sep. 2011 - kl. 10:00 - 12:15 - Fjallað var um hlutverk SFR, skipulag félagsins og tengslanet trúnaðarmanna. Farið var yfir helstu verkefni skrifstofu, þar á meðal kjarasvið, orlofskerfið og úthlutanir, starfsmenntunarsjóð, fræðslumál og styrktar og sjúkrasjóð. Þá var farið yfir vef SFR og hvernig má nálgast upplýsingar um réttindi og skyldur og kjaratengd efni í gegnum upplýsingaveitu SFR. Leiðbeinendur: Alma Lísa Jóhannsdóttir og Jóhanna Þórdórsdóttir.

Erfiðu mál trúnaðarmannsins

Mán. 30. maí 2011 - kl. 9:15-12:15 - Það er algengt að leitað sé til trúnaðarmanna um hin ýmsu mál sem upp koma á vinnustöðum. Sum hver eru léttvæg og fylgja amstri hversdagsleikans en önnur mál eru þung og viðkvæm. Í þessari vinnustofu verður trúnaðarmönnum gefinn kostur á því að taka þátt í umræðum um hvernig gagnlegt er að koma að sumum þeim málum sem upp kunna að koma. Þátttakendur geta komið með mál sem þeir eru að glíma við og rætt við aðra trúnaðarmenn og sérfræðinga um þau. Ekki er þörf á að vera með sérstök mál til að taka þátt í vinnustofunni. Dæmi um atriði sem eru rædd eru eineltismál, samskiptaerfiðleikar, vantraust, kynferðisleg áreitni, hlutverk trúnaðarmanns á krísutímum og ágreiningur samstarfsmanna. Vinnustofan er fyrir trúnaðarmenn sem vilja dýpka eigin þekkingu og færni í að takast á við trúnaðarmannahlutverkið af enn meiri festu og öryggi en áður.

Meðal þess sem tekið var fyrir á námskeiðinu:
- Hlutverk trúnaðarmannsins
- Ráðgjafarhlutverkið
- Að vera faglegur og þekkja sín eigin mörk
- Siðferði og traust í trúnaðarmannahlutverkinu

Leiðbeinandi: Eyþór Eðvarðsson.

Almannatryggingar og kjarasamningar 

Fös. 29. apríl 2011 - kl. 9:15-12:15 - Í kjarasamningum eru mörg ákvæði um tryggingar fyrir einstaklinga og hópa. Sum ákvæðin hafa verið lögfest, önnur eru eingöngu samningsbundin og taka breytingum eftir endurnýjun kjarasamninga. Farið verður yfir eðli almannatrygginga.  Leitað verður svara við spurningunum:
- Til hvers erum við með tryggingar?
- Hver er munurinn á einstaklingstryggingum og hóptryggingum?
- Hvaða tryggingar gilda í veikindum, vegna slysa eða fráfalls nákomins ættingja?
- Hverjar eru skyldur okkar svo tryggingar verði virkar?
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti veitt upplýsingar á sínum vinnustað um réttindi og skyldur þeirra sem þurfa að nýta sér tryggingar sem kjarasamningar veita. Skilningur þátttakenda verður aukinn á mikilvægi trygginga í starfi og leik. Námskeiðið er byggt upp af efni sem lagt er fram af leiðbeinanda. Lögð er áhersla á virka þátttöku með umræðu og hópavinnu.
 
Leiðbeinandi: Guðmundur Hilmarsson. 

Getur Virk hjálpað á þínum vinnustað? - Starfsendurhæfing

9. feb. 2011 - kl. 11:00-12:15 - Fræðslumorgunn - Sjá glærur frá fræðslumorgninum hér.
Almenn kynning á Virk - Starfsendurhæfingarsjóði Íslands. Fjallað verður um hlutverk ráðgjafa hjá stéttarfélögum. Farið verður yfir hvað starfið felur í sér og hvernig trúnaðarmenn geta miðlað upplýsingum um þessa þjónustu inni á sínum vinnustöðum.
Leiðbeinendur: Soffía Eiríksdóttir, Karen Björnsdóttir og Salome Þórisdóttir, starfsendurhæfingarráðgjafar hjá BSRB.  

Ánægja í vinnu og vinnugleði

6. des. 2010 - kl. 9:15-12:15 - Fræðslumorgunn
Markmið fræðslunnar er að trúnaðarmenn þekki leiðir til að hafa jákvæð áhrif á eigin líðan, starfsánægju og vinnugleði. Og að trúnaðarmenn séu jákvæðar fyrirmyndir á vinnustaðnum.
Lýsing: Umhverfið, stjórnunarhættir, hlutverk og fleiri ytri þættir s.s. samstarfsfólk, viðskiptavinir eða skjólstæðingar hafa áhrif á líðan okkar í vinnunni. Auk þess er margt sem hver og einn getur haft í huga og unnið með til þess að stuðla að góðri líðan, vinnugleði og ánægju í starfi og jafnvel smitað til annarra.  Á námskeiðinu eru skoðaðir þættir og gefin ráð sem geta aukið vinnugleði og vellíðan okkar í starfi. Má þar nefna viðhorf til trúnaðarhlutverksins, vinnunnar, verkefna og samstarfsfólks. Hvernig við upplifum innri hvatningu, hvort við venjum okkur á jákvæða rútínu í hugsun og hegðun, bjartsýni, baráttuþrek og fleiri uppbyggilega þætti. 
Á fræðslumorgninum var stuðst við fræðslu, umræður, sjálfsskoðun og verkefni.
Leiðbeinandi: Steinunn I. Stefánsdóttir frá Starfsleikni fjallar um ánægju í vinnu og vinnugleði.

Vaktavinna

10. nóv. 2010 - kl. 9:30-12:15 - Fræðslumorgunn
Á námskeiðinu verður fjallað um þann hluta kjarasamnings sem snýr að vaktavinnustarfsmönnum. Farið verður yfir lengd vakta, vaktskrá, breytingu á vaktskrá, vetrarfrí og bætingu, matar og kaffitíma vaktavinnufólks o.s.frv.
Leiðbeinandi: Guðrún Halldóra Sveinsdóttir, verkefnastjóri kjarasviðs SFR.
  

Berum við saman epli og appelsínu? Lærðu að lesa úr tölum

13. sept. 2010 - kl. 10-12:15 - Fræðslumorgunn
Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir könnun SFR á stofnun ársins og nýútkomna launakönnun. Hvernig trúnaðarmenn geta nýtt sér þessar kannanir í sínu starfi og hvernig þeir geta borið þær við aðrar launakannanir. Er stundum verið að bera saman epli og appelsínur? Hvað með ístarf og starfaflokka? Hvað með launamun kynjanna? Einnig verður komið inn á tölur frá Hagstofunni og Seðlabankanum og hvernig þær eru settar fram. Hvað þýðir t.d. hækkun eða lækkun stýrivaxta fyrir einstaklinga, hvað áhrif hefur það á lán.
Leiðbeinandi: Guðrún Halldóra Sveinsdóttir, verkefnastjóri kjarasviðs SFR.  

Jákvæðni, húmor og hlýlegt viðmót

31. maí 2010 - kl. 9:30 - 11 - Fræðslumorgunn
Jákvæðni er lífsafstaða. Mikilvægt er fyrir hverja manneskju að tileinka sér jákvæða lífsafstöðu til þess að þroskast eðlilega og geta átt gjöful mannleg samskipti. Það að tileinka sér jákvæða lífsafstöðu er ákvörðun og síðan stöðug þjálfun. Við gerum oft ekki greinarmun á því að reyna að hafa áhrif á umhverfi okkar með athugasemdum (gagnrýni) og að verða neikvæð. Nauðsynlegt er að þekkja muninn á því að "rýna til gagns" og að "menga" umhverfi sitt með neikvæðni. Skortur á færni til að koma á framfæri athugasemdum veldur oft misskilningi og misklíð. Á sumum vinnustöðum, í fjölskyldum/vinahópum er neikvætt andrúmsloft sem margir finna fyrir en erfitt er að skilgreina. Þetta birtist í vanlíðan einstaklinga, einelti og erfiðleikum í samskiptum. Á vinnustöðum eru það einstaklingarnir sem skapa andrúmsloftið og viðmót starfsmanna er það sem viðskiptavinir skynja. Færni í mannlegum samskiptum er grundvallaratriði til að ná árangri í lífinu. Fyrirlesari: Edda Björgvins 
 

Rökfræði og áróður

27. apríl 2010 - kl. 9:15-12.15 - Fræðslumorgunn.
Megináhersla er lögð á að skilgreina helstu einkenni rökræðu, mikilvægi þess að hlusta á skoðanir annarra og hvernig leikni í rökræðu kemur að notum í samningaviðræðum og daglegu lífi. Fjallað er um hvernig rökvillur eru greindar og farið yfir áróðurstækni sem hefur verið notuð gegnum tíðina og enn er notuð til að hafa áhrif á okkur. Leiðbeinandi: Haukur Harðarson.  
 

Kynjaheimar

11. febrúar 2010 - kl. 9:15-12.15 - Fræðslumorgunn
Megináhersla er á jafnan rétt karla og kvenna á öllum sviðum samfélagsins, hugtök sem tengjast orðræðunni um jafnrétti og þróun jafnréttisumræðunnar á Íslandi og vinnumarkaði, s.s. kyn/kyngervi, samþætting og jafnréttisáætlun. Fjallað er um áhrif atvinnuþátttöku, starfsvals, vinnutíma og menntunar á stöðu kynja á vinnumarkaðinum. Áhersla er á kynbundin launamun, lagalegt launajafnrétti og launaleynd. Velt er upp hugleiðingum á ástæðum launamisréttis og menningaráhrifum sem þar gætir. Sérstök áhersla er lögð á samþættingu sem aðferðarfræði til að tileinka sér nýjan hugsunarhátt og verklag. Fjallað er um jafnréttislögin og að lokum er fjallað um hvert hlutverk verkalýðshreyfingarinnar er og hvað hún er að gera til að fylgja eftir markmiðum laga um jafnan rétt og jafna stöðu kvenna og karla. Leiðbeinandi: Maríanna Traustadóttir.   

Nýir trúnaðarmenn!  Hvað er stofnanasamningur?

12. janúar 2010 - kl. 10-12.15 - Fræðslumorgunn 
Stofnanasamningar eru hluti af  kjarasamningi og er meðal annars ætlað að stuðla að skilvirkara launakerfi. Á fræðslumorgninum verður fjallað um: 
 

  • Hugmyndafræðina á bak við launakerfið sem tekið var upp 1997.
  • Uppbyggingu stofnanasamninga og hvað þeir fela í sér.
  • Samstarfsnefndir og vinnuferlið við gerð samninganna.
  • Samstarf trúnaðarmanna, samstarfsmanna og yfirmanna.

Fræðslan fór fram að Grettisgötu 89, 1. hæð. Leiðbeinendur: Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, og Guðrún H. Sveinsdóttir, verkefnastjóri kjarasviðs SFR.   

Sjá upptöku frá fræðslumorgninum um stofnanasamninga 12. janúar 2010.

Upplýsingaveita SFR 

11. desember - 10:00-12:15 - Fræðslumorgunn
Á fræðslumorgni trúnaðarmanna um hvernig trúnaðarmenn geta nýtt sér miðlun upplýsingaveitu SFR um réttindi og skyldur og kjaratengd efni. Umsjón: Guðrún Halldóra Sveinsdóttir, verkefnistjóri kjarasviðs SFR og Alma Lísa Jóhannsdóttir, umboðsmaður trúnaðarmanna.

Vinnustaðurinn eftir uppsagnir

13. október 2009, Grettisgötu 89, 1. hæð, kl. 10:00-12:15
Undanfarið hafa mörg fyrirtæki þurft að bregða á það ráð að segja upp fólki til að mæta þeim gífurlega samdrætti sem átt hefur sér stað í efnahagslífi þjóðarinnar. Uppsögn er eins og gefur að skilja átakanlegur atburður sem kallar fram sterkar tilfinningar. Íslensk fyrirtæki hafa oftast hugað vel að þeim sem missa vinnuna með því að bjóða upp á áfallahjálp, sálfræðilegan stuðning og ráðgjöf varðandi atvinnuleit. Einnig hafa stéttarfélög veitt félagsmönnum sínum ráðgjöf og aðstoð. Hins vegar gleymist oft að huga að þeim sem eftir „lifa“ eða „sleppa“, svokölluðum „lay-off survivors“. Þeir fá allajafna enga hjálp en fara í gegnum langt og erfitt tímabil þar sem reiði, tortryggni, kvíði, samviskubit og ótti eru ráðandi tilfinningar þeirra sem eftir sitja og hafa mikil áhrif á móral og frammistöðu starfsmanna. Þetta getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir skilvirkni og framtíðarmöguleika vinnustaðarins. Í fyrirlestrinum verður farið yfir upplifun, viðhorf og tilfinningar „eftirlifenda“.  Hvernig hægt er að liðsinna samstarfsfólki og hjálpa því að bregðast við uppsögnum og kvíða vegna hugsanlegra uppsagna og fjárhagsvanda. Leiðbeinandi: Þórhildur Þórhallsdóttir frá Þekkingarmiðlun 
 

Framsækni – örugg tjáning

26. febrúar 2009, BSRB húsinu, 1. hæð, kl. 9:15-12:15 - 3 klst.
Tilvalið fyrir þá sem geta þurft vegna starf síns eða félagsmála að koma fram og halda ræður eða kynningar. Aldrei fyrr hefur fólk þurft að markaðssetja sig eða starf sitt í jafn ríkum mæli. Í launaviðtölum og starfsumsóknum er mikilvægt að koma fram af öryggi. Námskeið fyrir vana jafnt sem óvana ræðumenn. Það þarf að þjálfa örugga framkomu eins og vöðvana og því er nauðsynlegt að halda sér við og bæta sig. Umsjón: Sigríður Arnardóttir félags- og fjölmiðlafræðingur

Á námskeiðinu er rætt um:
*Undirbúning kynningar/ræðu     *Að takast á við sviðsskrekk
*Tækni við góða kynningu/ræðu      *Líkamsstöðu og ímyndarsköpun.
*Hvað virkar og hvað virkar ekki í ræðupúlti?    
*Finndu þinn persónulega stíl og útgeislun.
*Að takast á við neikvæða strauma     *Hvað ef við þegjum bara?
*Hvað einkennir góða viðmælendur og samræðusnillinga?
*Að halda í sjálfstraust og bjartsýni þegar á móti blæs    *Að koma vel fyrir á erfiðum tímum.

Efnistök:
Fyrirlestrar með uppbyggjandi og hagnýtum ráðum.  Einstaklings- og hópverkefni. Umræður
Þeir sem nýtt hafa sér námskeiðið eru fjölbreyttir hópar vinnustaða og félagasamtaka.  

MEÐMÆLI:
,,Ég þarf í mínu starfi að halda fyrirlestra og ræður á ýmsum stöðum og einnig að hafa samskipti við fjölmiðla. Námskeið Sirrýjar um framsækni og örugga tjáningu er í einu orði sagt frábært. Gagnlegt, fræðandi, skemmtilegt, áhugavert eru það sem mér dettur fyrst í hug. Mér fannst það líka mannbætandi í þeim skilningi að auka jákvæðni og sjálfstraust. Námskeiðið fær mín bestu meðmæli og ég veit að það sem ég lærði þar mun nýtast mér í framtíðinni. Kærar þakkir Sirrý og BHM!!"
Ásta S. Helgadóttir, forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna  

MEÐMÆLI:
,,Ég þakka kærlega fyrir skemmtilegt námskeið, ég hafði mjög gaman og gagn af þessu, hún Sirrý gerði þetta mjög vel, þetta er í eitt af þeim fáum skiptum sem að ég hef farið á námskeið
þar sem að það lá engum á að komast í reyk eða pásu!
Og ekkert geisp..........! Mjög gott."
Finnur Númason trúnaðarmaður

Erfiðir tímar - erfiðir einstaklingar

20. janúar 2009, BSRB húsinu, Grettisgötu 89, kl 9:15-12:15
Lýsing á námskeiði; Hvernig geta stéttarfélög og starfsmenn þeirra undirbúið sig og vinnustaðinn undir úrlausn erfiðra mála meðal félagsmanna sinna, s.s. breyttar aðstæður, þarfir og kröfur. Þá verður farið í samskiptamynstur við einstaklinga í erfiðleikum og lögð áhersla á öguð vinnubrögð. Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur hafi unnið með og farið í gegnum hvaða mál þeim finnast erfiðust og hvernig samskipti þeir eiga erfiðast með. Þátttakendur móta sín viðhorf um hvernig þeir hyggist bregðast við og vinna úr þessum málum og hafi í huga hlutverk sitt sem starfsmenn stéttarfélaga, réttindi félagsmanna og eigin vinnuvernd. Uppbygging námskeiðsins samanstendur af fyrirlestri, verkefnavinnu og umræðum. 
Leiðbeinendur: Helga Björk Pálsdóttir og Sigurlaug Gröndal.  


Slóðin þín:

Trúnaðarmenn » Fræðslumorgnar
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti