Ferða- og dvalarkostnaður trúnaðarmanna
Reglur SFR um ferða- og dvalarkostnað trúnaðarmanna vegna trúnaðarmannafunda/trúnaðarmannafræðslu.
Trúnaðarmenn, sem sækja fundi á vegum SFR og eru ekki búsettir á Reykjavíkursvæðinu, skulu fá greiddan ferða- og dvalarkostnað samkvæmt eftirfarandi reglum:
- Trúnaðarmenn skulu ferðast með eins ódýrum hætti og mögulegt er.
-
Trúnaðarmenn skulu fá greitt andvirði flugfargjalds, þar sem hægt er að nota flugsamgöngur. Annað hvort skal nýta flugkort SFR og panta flug í gegnum skrifstofu SFR eða þá að trúnaðarmaður bókar sjálfur ódýrt flug á netinu og fær endurgreitt
-
Þar sem ekki eru flugsamgöngur skulu greiðslur vera 60% af kílómetragjaldi (+vegatollar).
-
Í þeim tilvikum sem trúnaðarmaður getur ekki ferðast fram og til baka samdægurs, skal félagið sjá honum fyrir gistingu. Tilkynna ber félaginu með 4 daga fyrirvara ef gistingar er þörf.
-
Ef trúnaðarmenn þurfa að dvelja lengur en fundadag(a) í Reykjavík, skal félagið sjá þeim fyrir fæði eða greiða þeim fæðiskostnað sem er kr. 2.000.- í hálfan dag og kr. 4.000.- í heilan dag.
-
Ef þörf krefur greiðir félagið leigubílakostnað samkvæmt kvittun til og frá flugvelli í Reykjavík eða andvirði þess.
Í þeim tilvikum sem ofanritaðar reglur ná ekki til, skal samið sérstaklega fyrirfram um greiðslur við skrifstofu SFR.
Reglur þessar gilda frá og með 1. janúar 2011.

