Trúnaðarmenn
Á flestum vinnustöðum starfa trúnaðarmenn. Þeir gegna mikilvægu hlutverki þar sem þeim ber að gæta þess að samningar á milli atvinnurekenda og starfsmanna séu virtir og að ekki sé gengið á rétt starfsmanna.
Kosning trúnaðarmanna SFR fer fram í september 2009, en trúnaðarmenn eru kosnir til tveggja ára í senn. Hafa ber i huga að sá sem starfsmenn velja sem sinn trúnaðarmann er fulltrúi þeirra gagnvart vinnuveitanda.
HVERT ER HLUTVERK TRÚNAÐARMANNA?
Trúnaðarmenn eru tengiliður milli SFR og félagsmanna á vinnustað og þurfa að gæta þess m.a. að kjarasamningar séu haldnir og réttur starfsmanna virtur. Þeir eru til aðstoðar ef og þegar upp rís ágreiningur um samningsbundin kjör starfsmanna, hvort sem óskað er af starfsmanni eða vinnuveitenda.
Trúnaðarmenn mynda saman trúnaðarmannaráð SFR og eru trúnaðarmannaráðsfundir haldnir mánaðarlega yfir vetrarmánuðina og þar eru teknar allar meiriháttar ákvarðanir milli aðalfunda.
Trúnaðarmenn eru fulltrúar stéttarfélagsins úti á vinnustöðum. Þeir standa þó aldrei einir því stjórn og starfsmenn félagsins eru þeim til stuðnings við að leysa úr vanda sem upp kann að koma og heyra undir starfssvið félagsins.
HVAÐ ÞARF TRÚNAÐARMAÐUR AÐ HAFA TIL AÐ BERA?
Góður trúnaðarmaður þarf fyrst og fremst að hafa áhuga á vellíðan og starfsöryggi félaga sinna. Hann þarf að vera vakandi fyrir vinnuumhverfinu og eiga auðvelt með mannleg samskipti, hafa ríka réttlætiskennd, eiga auðvelt með samstarf og vera óhræddur við að axla ábyrgð.
Vinnustaðir félagsmanna SFR eru sumir stórir og starfsmenn sinna ólíkum störfum. Til þess að rödd sem flestra heyrist í trúnaðarmannaráði félagsins er nauðsynlegt að starfsmenn úr ólíkum starfsgreinum gefi kost á sér til trúnaðarstarfa. Kjörinn trúnaðarmaður þarf því að þekkja til sem flestra starfa á sínum vinnustað og vera í góðu sambandi við félaga sína.
GÓÐ REYNSLA SEM NÝTIST VEL
Þeir sem sinnt hafa trúnaðarstörfum fyrir stéttarfélög þekkja það að sú reynsla nýtist þeim ekki síður vel í starfi. Þekking á málefnum starfsmanna, leikni í mannlegum samskiptum og reynsla af samstarfi við lausn verkefna á sviði starfsmannamála er mjög verðmæt.
SFR stefnir að því alla daga að efla félagið í baráttunni fyrir bættum kjörum og auknum réttindum félagsmanna sinna. Vinnumarkaðurinn er að breytast og hlutverk trúnaðarmanna verður sífellt meira og mikilvægara. Með breyttu launakerfi og aukinni hlutdeild forstöðumanna stofnana í samnings- og réttindamálum félagsmanna er nauðsynlegt að starfsmenn hafi í sínum röðum hæfa og vel þjálfaða trúnaðarmenn.
TRÚNAÐARMANNARÁÐ
Trúnaðarmannaráð er myndað af öllum trúnaðarmönnum félagsins og stjórn. Á hverjum þeim vinnustað, þar sem fimm eða fleiri félagsmenn SFR starfa, skulu þeir kjósa sér trúnaðarmann í septembermánuði annað hvort ár. Hlutverk trúnaðarmannaráðs er að vera stjórn félagsins til stuðnings og afgreiðir það þau mál sem ekki þarf að leggja fyrir félags- eða aðalfund.
- Trúnaðarmenn SFR 2009-2011 - stafrófsröð
- Trúnaðarmenn SFR 2009-2011 - raðað eftir vinnustað
- Fyrirhugaðir fundir trúnaðarmanna.
- Fundargerðir trúnaðarmannaráðsfunda.
- Starfsreglur trúnaðarmanna og trúnaðarmannaráðs SFR
- Umsóknareyðublað vegna ferðakostnaðar trúnaðarmanna
- Reglur vegna ferðakostnaðar trúnaðarmanna



















