Minnispunktar
- Rafrænar umsóknir fyrir sumarið 2008. Sífellt fleiri félagsmenn hafa nýtt sér þann kost að sækja um orlofshúsin/tjaldvagnana á netinu. Umsóknarformið er að finna á forsíðu www.sfr.is og þar eru einnig tenglar með almennum upplýsingum og myndum af viðkomandi stað. Umsóknarfrestur er sá sami og fyrir póstlagðar umsóknir, þ.e. til miðnættis þann 29. mars.
- Biðlisti. Aðeins þeir sem sækja um á réttum tíma en fá ekki úthlutað komast á biðlista, en eingöngu á þeim stöðum sem viðkomandi sótti um. Unnið er úr biðlistum í vikunni eftir að greiðslufrestur er útrunninn en eftir það verður það sem er laust sett inn á netið til umsóknar og þá gildir reglan fyrstur bókar fyrstur fær.
- Hvalfjarðargöngin. Hægt er að kaupa staka miða á skrifstofu SFR. Miðarnir eru til sölu allt árið og kosta 540 kr. stk.
- Sængurfatnaður (lín). Sú breyting hefur orðið frá fyrra árai að nú þarf alls staðar að taka með sér sængurfatnað (lín), sem og handklæði, diskaþurrkur, borðklúta, plastpoka o.þ.h. Einnig minnum við á að á þeim stöðum sem eru kolagrill þarf að taka með sér bæði kol og kveikjulög. Sjá nánar aðstöðutöflu hér að neðan.
- Umgengni. Orlofshúsin eru sameign okkar allra og nauðsynlegt að við sameinumst um að umgangast þau með því hugarfari. Afar mikilvægt er húsin séu vel þrifin við brottför (ekki gleyma grillinu og heita pottinum).
- Ætlast er til að hver og einn gangi frá húsinu eins og hann vildi sjálfur koma að því. Ef félagsmaður kemur að húsi sem er ekki eins og það á að vera er mjög mikilvægt að hafa samband strax við umsjónarmann.
- Verði vanhöld á þrifum að mati umsjónarmanns getur það varðað áminningu og að leigutaka verði gert að greiða staðlað þrifagjald, 6.000 kr. Ef um meiriháttar vanhöld á þrifum er að ræða, sem útheimtir meiri útgjöld fyrir orlofssjóð, getur gjaldið orðið hærra.
- Reykingar eru stranglega bannaðar í öllum húsum.
- Dýrahald. Stranglega er bannað að hafa gæludýr með sér í húsin nema sérstaklega sé auglýst að það megi. Ef fólk verður uppvíst að því að brjóta þetta bann getur það átt von á viðurlögum. Hingað til hefur verið eitt hús þar sem dýrahald er leyfilegt og er það Akurgerði sem SFR leigir eingöngu yfir sumartímann.
Á döfinni
9. september 2010
13. september 2010
13. september 2010
Til félagsmanna
3. September 2010
Náms- og starfsráðgjöf fyrir alla félagsmenn
Fræðslusetrið Starfsmennt býður félagsmönnum aðildarfélaga BSRB upp á náms- og starfsráðgjöf, þeim að kostnaðarlausu. Ráðgjöfin nýtist fólki á öllum aldri til að viðra hugmyndir sínar um nám og starfsþróun. Sjá nánar HÉR.
8. Júní 2010
Fræðsla um svepparíkið
Skráning hafin á námskeið um svepparíkið sem haldið verður síðsumar 2. og 4. september...
12. Maí 2010
Jónsmessuferð Lífeyrisþegadeildar SFR
Uppbókað er í Jóns-messuferð LSFR, en að þessu sinni verður farið til Stykkishólms og í siglingu...



















