Húsafell Hraunbrekkur 4 og 6
| |
Sjá fleiri myndir HÉR. Leigutími allt árið.
Húsin nr. 4. og 6. við Hraunbrekkur eru 64 m2, með heitum pottum, tveimur hjónaherbergjum, einu svefnherbergi með þremur rúmstæðum og 30 m2 svefnlofti. Svefnpláss í herbergjum er fyrir 7, þ.e. fyrir 2 og 2 í sitt hvoru hjónaherberginu og fyrir 3 í barnaherbergi. 5 góðar aukadýnur eru á svefnlofti. Í hvoru húsi eru sængur og koddar fyrir 12, allur almennur borðbúnaður, eldavél með ofni, örbylgjuofn, uppþvottavél, sjónvarp, myndbandstæki, útvarp með geislaspilara, kolagrill og útihúsgögn.
Staðarlýsing: Frá Borgarnesi er um klukkustundarakstur í Húsafell og þaðan er hægt að aka yfir í Kaldadal til Þingvalla yfir sumartímann. Í Húsafelli er miðstöð samgangna og þjónustu fyrir mjög stórt svæði, sundlaug og golfvöllur, auk Safnahúss Borgarfjarðar. Reykholt, sem er annálaður sögustaður með Snorralaug og Snorrastofu, er aðeins 21 km. frá Húsafelli. Margir sögufrægir staðir eru í nágrenni Húsafells, s.s. Draugaréttin á Húsafelli. Einnig er stutt í ýmsa staði sem vert er að skoða, t.d. Barnafossa, Surtshelli o. fl. Í Húsafelli er sundlaug, heitir pottar og vatnsrennibraut, 9 holu golfvöllur, minigolf, hestaleiga og varðeldur á laugardagskvöldum yfir sumartímann. Boðið er upp á heillandi frðir á Langjökul og einnig er hægt að kaupa veiðileyfi á staðnum.
Almennar upplýsingar um landsvæðið má finna á www.husafell.is.
Nauðsynlegt og gott að taka með: Salernispappír, handsápu og sjampó, sængurfatnað (lín) og lök, handklæði,
diskaþurrkur, borðtuskur, plastpoka, eldhúsrúllur, kaffipoka (filter), kol og grillvökva (ef kolagrill), kerti og eldspýtur, álpappír, krydd, sykur og olíu til steikingar, vasaljós og svo hleðslutæki fyrir gemsann.
ATHUGIÐ!
Gæludýr eru stranglega bönnuð í húsunum - það gildir líka um gæludýr gesta.
Reykingar eru stranglega bannaðar.
Góð umgengni er hagur okkar allra og því er mikilvægt að skilja við eins og við viljum koma að. SFR áskilur sér rétt til að innheimta sérstakt þrifagjald þar sem ekki er nægjanlega vel skilið við.
Sjá Verð.



















