Beint á leiðarkerfi vefsins

SFR.is

SFR.is

Munaðarnes

   

Almennt um Munaðarnes
Munaðarnes eru í um 22 km fjarlægð frá Borgarnesi, í fallegu kjarrivöxnu umhverfi rétt ofan við Norðurá. Stutt er í góðar sundlaugar á svæðinu. Sundlaugin á Varmalandi er einungis í nokkurra kílómetra fjarlægð og sundlaugin í Borgarnesi er ein sú besta á landinu.
Golfvöllurinn Glanni var vigður sumarið 2006, og er níu holu völlur í fögru umhverfi. BSRB er aðili að rekstarfélagi klúbbsins. Völlurinn er í næsta nágrenni orlofsbyggða BSRB í Munaðarnesi og Stóruskógum og fá þeir sem eru í aðildarfélögum BSRB helmingsafslátt á völlinn. Einnig er golfvöllur að Hamri, rétt utan við Borgarnes og hestaleigur eru nokkrar í næsta nágrenni Munaðarness. Þá er víða hægt að kaupa ódýr veiðileyfi í vötn í nágrenninu, t.d. Hreðavatn og Langavatn. Ferðir á Langjökul njóta vinsælda og þannig mætti lengi telja. Frá Munaðarnesi er stutt að fara til þess að skoða ýmsa fagra og markverða staði, bæði út frá náttúrufræðilegu og sögulegu samhengi. Borg á Mýrum og Reykholt eru meðal þekktustu staða Íslandssögunnar og Grábrókarhraun, Hreðavatn, Baula, Hraunfossar, Surtshellir, Glanni og Paradísarlaut eru meðal helstu náttúruperla landsins. Almennar upplýsingar um landsvæðið má finna á http://www.vesturland.is/

SFR á nú 10 hús á svæðinu og eru 7 þeirra í útleigu í sumar (hús nr. 3, 10 , 12, 14, 73 og 76)

Húsin eru í þremur hverfum, þ.e. í hverfum Stekkjarhóls, Vörðuáss og Bjasrnkaráss. Öll eru húsin með svefnplássi fyrir 6-8 manns. Hús nr. 10 í Bjarkaráshverfi er hannað með tilliti til aðgengis hreyfihamlaðra. Í hverju húsi eru sængur og koddar, allur almennur borðbúnaður, eldavél með bökunarofni, sjónvarp, útvarp og kolagrill. Heitur pottur er við öll húsin. Húsi nr. 76 verður sérstaklega úthlutað til lífeyrisþega í sumar.

Ekki er lengur hægt að fá rúmfatnað í þjónustumiðstöðinn eins og verið hefur undanfarin ár. Nú verða gestir að taka með sér rúmföt, viskustykki, tuskur og WC pappír eins og í öðrum húsum SFR.  Hægt er að tengjast þráðlausu interneti í sumarhúsunum, gegn greiðslu. Leiðbeiningar um notkun verður í húsunum.

Sjá Verð.

BÓKUNARVEFUR
 


Munaðarnes - hús nr. 3



Stækka mynd


 Stækka teikningu

 

 

Húsin eru um 60 m2 með þremur svefnherbergjum og svefnrými fyrir 8 manns. Í hverju húsi eru sængur og koddar, allur almennur borðbúnaður, eldavél með ofni, sjónvarp, útvarp og kolagrill.  Heitur pottur er við húsin. Leigutími: Allt árið (vetur BSRB, sumar og páskar SFR). 

Munaðarnes - hús nr. 10 í Bjarkaráshverfi með aðgengi fyrir hreyfihamlaða


Stækka mynd


 Stækka teikningu
 
Húsið er um 60 m2 með þremur svefnherbergjum og svefnrými fyrir 8 manns. Húsið er hannað með tilliti til aðgengis hreyfihamlaðra,  s.s. snyrting.  Eldhúsinnrétting er með rafbúnaði til að hækka hana og lækka. Stór verönd með skábraut er við húsið og þar fyrir framan hellulagt bílastæði. Í húsinu eru sængur, koddar, allur almennur borðbúnaður, eldavél, ofn, sjónvarp, útvarp, örbylgjuofn og kolagrill. Heitur pottur er við húsið. Leigutími: Allt árið (vetur BSRB, sumar og páskar SFR).

Munaðarnes - hús nr. 11 og 12 í Vörðuáshverfi


Stækka mynd

 Stækka teikningu

Stækka mynd
Húsin eru um 47 m2 með tveimur svefnherbergjum. Svefnpláss er fyrir 6, þ.e. 2 í hjónaherbergi og fyrir 4 í kojum í barnaherbergi.  Einnig eru 2 aukadýnur. Í húsinu eru sængur, koddar, allur almennur borðbúnaður, eldavél með ofni, sjónvarp, útvarp og kolagrill. Heitur pottur er við húsin. Leigutími: Allt árið (vetur BSRB, sumar og páskar SFR).

Munaðarnes - hús nr. 72-74 og 76 í Stekkjarhólshverfi


Stækka mynd

  Stækka teikningu

Stækka mynd
Húsin eru um 52 m2 með þremur svefnherbergjum. Svefnpláss er fyrir 6, þ.e. 2 í hjónaherbergi og fyrir 4 í kojum í barnaherbergjum. Einnig eru 2 aukadýnur. Í húsinu eru sængur, koddar, allur almennur borðbúnaður, eldavél með ofni, sjónvarp, útvarp og kolagrill. Heitur pottur er við húsin. Leigutími: Allt árið (vetur BSRB, sumar og páskar SFR).


Á döfinni

Til félagsmanna

27. Janúar 2010

Komdu í kór!

Maí kórinn er kór BSRB félaga og er opinn öllum félögum í aðildarfélögum BSRB, vinum þeirra og vandamönnum. Kórfélagar hittast einu sinni í viku á þriðjudagskvöldum kl. 20:15 í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, og syngja saman fjölbreytt lög undir styrkri stjórn Svövu Kristínar Ingólfsdóttur. Í hópnum er vant söngfólk og óvant, bæði karlar og konur. - Allir eru velkomnir.

15. Janúar 2010

Útlhlutun orlofshúsa - páskar, sumar

Páskaúthlutun orlofshúsa verður kynnt í næsta SFR blaði sem kemur út um mánaðarmótin jan./feb. Áætlað er að úthlutun fari fram seinnihluta febrúar. Þá kemur út orlofsblað í lok febrúar...

14. Janúar 2010

Lyfta óvirk í BSRB húsi

Þessa dagana er verið að endurnýja lyftuna í BSRB húsinu. Áætluð verklok eru 29. janúar.

 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré English