Þróunar- og símenntunarsjóður
Markmið Þróunar- og símenntunarsjóðs er að auka möguleika stofnana á að þróa starfssvið sitt þannig að það samræmist þeim kröfum sem gerðar eru til stofnana á hverjum tíma og efla símenntun starfsmanna sem eru í SFR með það fyrir augum að þeir séu færari til að takast á við sífellt fjölbreyttari verkefni. Sjóðurinn sinnir hlutverki sínu með því að veita styrki til fræðsluverkefna á sviði símenntunar sem eru í samræmi við markmið hans. Stjórn sjóðsins er skipuð annars vegar af stjórn SFR og hins vegar af fjármálaráðherra.
Umsóknum skal skilað á sérstöku umsóknareyðublaði sem má nálgast hér og er á WORD formi. Hægt er að sækja það og vista það niður á meðan unnið er í umsókninni, síðan skal senda það á netfangið gudny@sfr.is.
Uppgjörsblað mun einnig verða hægt að nálgast á þessum vef, en verið er að vinna það (3.feb.2012).
Stjórn sjóðsins
Tilnefnd af SFR:
Árni Stefán Jónsson, SFR og Kolbrún Kristinsdóttir, Íbúðalánasjóður
Tilnefnd af atvinnurekendum:
Guðmundur H. Guðmundsson, starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytis og
Ásgeir Kristinsson, Vegagerðinni
Reglugerð Þróunar- og símenntunarsjóðs



