Úthlutunarreglur sjúkrasjóðs
Gildir frá 1. janúar 2012.
Úthlutunarreglur
Styrktar- og sjúkrasjóðs
1. gr. Inngangur
Greiddar eru bætur til sjóðfélaga í slysa- og veikindatilfellum samkvæmt eftirfarandi reglum. Þá er veittur fæðingarstyrkur til foreldra, einnig eru styrktar fyrirbyggjandi aðgerðir á sviði heilsueflingar og forvarna gegn sjúkdómum sbr. 4 gr. Umsóknir um styrki úr sjóðnum eru í rafrænu formi hér á vef SFR.
2. gr. Sjúkradagpeningar og greiðslufyrirkomulag þeirra
Rétt til dagpeninga eða styrks úr sjóðnum eiga þeir sem eru fullgildir félagsmenn í SFR og njóta veikindaréttar samkv. gr. 12.2 í kjarasamningi SFR. Einnig þeir sjóðfélagar sem starfa á almenna vinnumarkaðinum og fer um rétt þeirra samkv. gr. 9 í reglum þessum.
Dagpeningar greiðast úr sjóðnum með eftirfarandi hætti:
a) Réttur sjóðfélaga til dagpeninga á hverjum 12 mánuðum er:
Starfstími 0 - 1 ár 30 dagar
Starfstími yfir 1 ár 90 dagarSjóðfélagi sem hefur áunnið sér 360 daga veikindarétt skv. kjarasamningi á möguleika á sjúkradagpeningum í 45 daga ef hann á ekki rétt annars staðar. Dagpeningar greiðast ekki lengur en ráðning starfsmanns er ætlað að standa
b) Dagpeningar greiðast frá þeim tíma sem samningsbundinni launagreiðslu frá atvinnurekanda lýkur og veikindin hafa staðið í minnst 10 daga.
c) Upphæð dagpeninga skal vera 80% af meðal heildarlaunum síðustu 12 mánuði. Sé starfstími skemmri skal miðað við meðaltal launa þann tíma.
d) Heimilt er að greiða hlutfallslega dagpeninga ef sjóðfélagi getur ekki vegna veikinda unnið fulla vinnu samkvæmt læknisráði.e) Heimilt er að greiða dagpeninga í allt að 60 daga vegna langvarandi veikinda maka eða barna sjóðfélaga enda missi hann launatekjur vegna þeirra. Sjóðfélagi skal þó hafa náð eins árs félagsaðild til að njóta þessarar heimildar.
f) Ef félagsmaður á rétt á örorku- eða ellilífeyri skulu þær greiðslur dragast frá sjúkradagpeningunum.
Með umsókn um dagpeninga skal fylgja læknisvottorð, síðasti launaseðill (eða fleiri eftir atvikum) og vottorð frá launagreiðanda um hvenær rétti til launa í veikindum lýkur. Umsóknir og meðfylgjandi gögn vegna dagpeninga þurfa að berast SFR fyrir 20. hvers mánaðar.
3. gr. Fæðingarstyrkur
Frá og með 1. janúar 2009 er fæðingarstyrkur greiddur úr Styrktar-og sjúkrasjóði SFR. Styrkurinn er jafnhár til kvenna og karla en hliðsjón er höfð af starfshlutfalli. Fullur styrkur er kr. 220.000,- vegna hvers barns og miðast við að foreldri hafi stundað 100% starf síðustu 6 mánuði fyrir fæðingu barns /barna.
- Foreldrar sem eru félagsmenn í SFR eiga rétt á styrk séu þeir aðilar að sjóðnum og uppfylla skilyrði um sjóðsaðild, karlar jafnt sem konur.
- Séu báðir foreldrar í SFR, sækja þau um hvort í sínu lagi.
- Umsækjandi þarf að vera að lágmarki í 25% starfshlutfalli til að eiga rétt á styrk.
- Styrkurinn lækkar í hlutfalli við skert starfshlutfall.
- Um ættleiðingar gilda sömu reglur og um venjulega fæðingu væri að ræða.
- Sé um að ræða fósturlát eftir 18 vikna meðgöngu er greiddur út hálfur fæðingarstyrkur.
- Hægt er að nýta styrkinn upp að 18 mánaða aldri barns/barna.
Fæðingarstyrkur er veittur til foreldris gegn framvísun fæðingarvottorðs og staðfestingu atvinnurekanda um að umsækjandi sé með ráðningu þar sem fram koma upplýsingar um starfshlutfall hans s.l. 6 mánuði fyrir fæðingu barns/barna.
4. gr. Forvarnir - líkami og sál
Styrktar eru eftirfarandi meðferðir, forvarnir og fyrirbyggjandi aðgerðir:
a) Sjúkraþjálfun, sjúkranudd, hnykklækningar
Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í eitt ár fær styrk til sjúkraþjálfunar, sjúkranudds og hnykklækninga (kiropraktor) eða sambærilegrar meðferðar, 1.500 kr. fyrir hvert skipti í allt að 25 skipti á almanaksári. Einnig þjálfun hjá Hjarta- og lungnastöðinni eða sambærilegum stofnunum.
b) Krabbameinsleit og hjartavernd
Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í þrjá mánuði fær styrk að fullu fyrir venjubundna skoðun hjá leitarstöð Krabbameinsfélagsins eða kvensjúkdómalækni (nú 3.700 kr.) einu sinni á almanaksári.Sama gildir um áhættumatsskoðun hjá Hjartavernd að hámarki 16.000 kr. einu sinni á almanaksári.
Þá getur sjóðfélagi sem hefur verið 12 mánuði í félaginu fengið styrk vegna framhaldsrannsókna vegna krabbameins á vegum Krabbameinsfélags Íslands, allt að kr. 10.000. Einnig getur sjóðfélagi fengið styrk til krabbameinsskoðunar í ristli og blöðruhálskirtli að hámarki kr. 10.000.-
c) Sálfræði-, félags- og fjölskylduráðgjöf
Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í eitt ár fær styrk vegna meðferðar hjá eftirtöldum viðurkenndum meðferðaraðilum: Félagsráðgjafa, fjölskylduráð-gjafa eða sálfræðingi. Greiddar eru 5.000 kr. í allt að 15 skipti á almanaksári.
d) Dvöl á heilsustofnun
Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í eitt ár fær styrk vegna meðferðar á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði. Greiddar eru 2.000 kr. á dag fyrir allt að 20 daga á almanaksárinu.
e) Líkamsrækt
Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í eitt ár eða lengur fær styrk að hámarki 20.000 kr. á almanaksári samkvæmt reikningi frá eftirtöldum aðilum. Líkamsræktarstöðum, sundstöðum, skíðastöðum eða íþróttafélagi. Einnig líkamsrækt sem telst sambærileg að dómi sjóðstjórnar.
5. gr. Ýmsir styrkir
a) Augnaðgerðir og gleraugu
Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í eitt ár fær styrk til „laser" aðgerðar á öðru auga 50.000 kr. eða 100.000 kr. fyrir bæði augu.
Einnig er veittur styrkur vegna gleraugnakaupa einu sinni á 36 mánaða fresti. Greidd eru 20% af heildarverði reiknings sem er að upphæð 10.000 kr. eða hærri. Styrkur vegna gleraugnakaupa getur þó aldrei orðið hærri en 30.000 kr.
b) Tannviðgerðir
Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í eitt ár getur sótt einu sinni um styrk vegna tannlæknakostnaðar á 24 mánaða fresti. Styrkurinn nemur 30% af kostnaði sem er umfram 80.000 kr., að hámarki 80.000 kr.Ekki eru teknar eldri kvittanir en frá fyrra ári.
c) Heyrnartæki
Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í eitt ár getur sótt um styrk til kaupa á heyrnartækjum. Styrkurinn nemur 50% af kostnaði sem fer umfram 50.000 kr., þó að hámarki 150.000 kr.d) Tæknifrjóvgun
Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í eitt ár getur fengið greitt 30% af reikninig vegna smásjár- eða glasafrjóvgunarmeðferða (lyf eru ekki innifalin). Hámarksstyrkur er 120.000 kr. á almanaksári
6. gr. Útfararstyrkur
Greiddur er útfararstyrkur vegna andláts greiðandi sjóðfélaga kr. 200.000.- enda hafi hinn látni verið sjóðfélagi og greitt í a.m.k. síðustu 12 mánuði samfellt fyrir andlát. Enn fremur greiðir sjóðurinn útfararstyrk að fjárhæð 100.000 kr. vegna andláts fyrrverandi sjóðfélaga allt að 5 árum eftir að þeir hafa hætt störfum og lokið starfsævi sinni, vegna aldurs eða örorku. Útfararstyrkur greiðist til lögerfingja. Skila þarf inn reikningi tengdum útför viðkomandi.
7. gr. Sérstakar aðstæður
Heimilt er, eftir mati sjóðstjórnar hverju sinni, að veita styrk vegna sérstakra aðstæðna sem hafa í för með sér launamissi eða veruleg fjárútlát sjóðfélaga vegna veikinda hans sjálfs eða nánustu fjölskyldu.
8. gr. Almenn skilyrði, umsóknir og gögn
Sjóðfélagi skal greiða a.m.k. 12.000 kr. í félagsgjöld sl. 12 mánuði til að fá fullan styrk. Hálfur styrkur er veittur þeim sem greiða á bilinu 6-12 þús. í félagsgjöld sl. 12. mánuði. Umsóknir um styrki úr sjóðnum eru í rafrænu formi hér á vef SFR.
Gögn: Nauðsynleg gögn verða að liggja fyrir til að sjóðfélagi geti fengið greitt úr sjóðnum. Þessi gögn eru: Frumrit sundurliðaðara reikninga sem sannanlega eru greiddir, með nafni umsækjanda. Á reikningnum þarf að vera áritun/stimpill/merki þess er gefur reikninginn út með upplýsingum um nafn, starfsheiti, kennitölu og heimilisfang eða símanúmer. Fjöldi skipta og dagsetningar meðferða eða kaupa á vöru eða þjónustu skal koma fram á reikningi.
9. gr. Sjóðsaðild
Almenn réttindi: Sjá úthlutunarreglur sjóðsins.
Yfirfærsla á réttindum milli sjóða. Sjóðfélagar öðlast rétt til úthlutunar eftir iðgjaldagreiðslu í einn mánuð ef hann, fyrir það greiðslutímabil, átti rétt til úthlutunar úr sjóði annars stéttarfélags, enda veiti sá sjóður fyrrum sjóðfélögum Styrktarsjóðs SFR samskonar rétt.
Í fæðingarorlofi. Sjóðfélagar sem fara í fæðingarorlof og velja að greiða áfram stéttarfélagsgjald meðan á fæðingarorlofi stendur halda fullum réttindum.
Í launalausu leyfi. Réttur til úthlutunar úr sjóðnum fellur niður á meðan á launalausu leyfi stendur en stofnast að nýju strax við fyrstu iðgjaldagreiðslu að leyfi loknu.
10. gr. Félagsmenn á almenna markaðinum
Félagsmenn í A-hluta félagsins (félagar á almenna markaðinum), sem greidd eru 1% fyrir í sjóðinn, skulu njóta hliðstæðra réttinda í slysa- og veikindatilfellum og almennt gerist hjá sjúkrasjóðum á almenna markaðinum (sjá sérreglur).
Annarra styrkja skulu þessir félagsmenn njóta samkvæmt ofangreindum reglum eins og við á hverju sinni.
Fyrirvari:
Stjórn sjóðsins áskilur sér allan rétt til að breyta reglunum ef þörf krefur, hvort sem er til þrengingar eða útvíkkunar. Fjármagn í sjóðnum verður látið ráða því á hverjum tíma.



