Styrktar- og sjúkrasjóður
- Úthlutunarreglur styrktar- og sjúkrasjóðs frá 1. janúar 2012
- Reglugerð styrktar-og sjúkrasjóðs
- Umsókn á rafrænu formi
SFR félagar geta sótt um styrki úr Styrktar- og sjúkrasjóði vegna;
- veikinda, hafi þeir klárað veikindarétt sinn
- sjúkraþjálfunar / sjúkranudds / hnykklækninga
- krabbameinsleitar (vegna legháls, brjósta, ristils og blöðruhálskirtils),
grunnrannsókn og framhaldsrannsókn - áhættuskoðunar hjá Hjartavernd
- sálfræði-, félags- og fjölskylduráðgjafar
- dvalar á Heilsustofnun NLFÍ
- líkamsræktar
- "Lazer" augnaðgerða og gleraugnakaupa
- tannviðgerða
- fæðingar barna, ættleiðingar, smásjár- eða glasafrjóvgunar
- heyrnartækja
- útfarar
Sjá nánar í úthlutunarreglum.
Markmiðið með sjóðnum er að veita félagsmönnum fjárhagsaðstoð í veikinda- og slysatilvikum, að styðja og efla félagsmenn vegna endurhæfingar eftir slys eða sjúkdóma og að styðja og efla félagsmenn í forvörnum og fyrirbyggjandi aðgerðum sem snerta öryggi, heilsufar og heilbrigði starfsmanna.
Stjórn sjóðsins
Gréta Húnfjörð Sigurðardóttir
Karl Valdimarsson
Védís Guðjónsdóttir
Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir
Hildur Gunnarsdóttir
Jóhanna Lára Óttarsdóttir



