Úthlutunarreglur starfsmenntunarsjóðs
Nýjar reglur starfsmenntunarsjóðs sem tóku gildi 1. janúar 2011.
Hver á rétt á styrk?
1. Félagsmenn þurfa að hafa verið félagar í SFR í eitt ár til að eiga rétt á styrk. Félagsmaður skal greiða a.m.k. 12.000 kr. í félagsgjöld sl. 12 mánuði til að fá fullan styrk. Hálfur styrkur er veittur þeim sem greiða á bilinu 6-12 þús. í félagsgjöld sl. 12. mánuði.
Heimilt er þó að styrkja erlenda félaga í SFR til náms í íslensku eftir skemmri tíma en eitt ár í starfi.
2. Umsækjandi þarf að vera í starfi bæði þegar hann sækir um styrk og notar hann, nema styrkurinn varði endurhæfingu þar sem staða umsækjanda hefur verið lögð niður, umsækjandi veikst eða orðið fyrir slysi.
3. Nám, námskeið, námstefnur, ráðstefnur, kynnisferðir eða annað sem hefur í för með sér sambærilega þekkingaröflun til aukinnar starfshæfni og tengja má starfi umsækjanda er styrkhæft.
Hvað eru styrkirnir háir?
4. Félagsmaður getur að hámarki fengið 100 þúsund í styrk á tveggja ára tímabili.
Undantekning er að ef félagsmaður hefur verið átta ár eða lengur þá getur hann fengið allt að 120 þúsund í styrk. Styrkurinn er að hámarki 80% náms- eða skólagjalda umsækjanda (undantekning sjá lið e).
Upphæðir styrkja eru eftirfarandi:
a) Námsstyrkur hámark 100.000,-
þeir sem hafa verið félagsmenn í átta ár eða lengur geta fengið
allt að 120.000,-b) Ráðstefnur/námstefnur/kynnisferðir erlendis, hámark 80.000,-
c) Ráðstefnur/námstefnur/kynnisferðir innanlands, hámark 25.000,-
d) Námskeið til starfsréttinda, án beinnar tengingar v.starf, hámark 60.000.-
e) Sjálfsstyrkingarnámskeið innanlands, hámark 40.000,-
f) Lífsleikninámskeið án beinnar tengingar við starf, 50% af gjaldi,
hámark árlega 20.000.-
Hvernig er greitt úr sjóðnum?
5. Greiðslur úr sjóðnum fara einungis fram gegn afhendingu frumrits reiknings. Reikningur skal vera númeraður, með nafni og kennitölu nemanda og skilgreindum námstíma. Hann skal vera stimplaður og greinilega merktur námsstofnun.
Þegar um kynnisferðir og ráðstefnur er að ræða þarf að koma bréf frá viðkomandi stofnun um tilgang og markmið ferðar auk nafnalista og kostnaðaráætlunar, árituð af yfirmanni. Auk þess þarf að sýna afrit af farseðli eða hliðstæðar kvittanir vegna útlagðs ferðakostnaðar.
6. Ef styrks er ekki vitjað innan 6 mánaða frá afgreiðslu umsóknar fellur hann niður.
Hvernig er hægt að sækja um styrk?
7. Sótt er um rafrænt á vefsíðu SFR en einnig liggja eyðublöð frammi á skrifstofu félagsins. Frumritum reikninga skal síðan komið á skrifstofu félagsins.
8. Umsækjendur eru hvattir til að vanda frágang umsókna.
a) Tilgreina þarf nafn, kennitölu, vinnustað, hvenær þeir hófu störf
og til hvers þeir ætla að verja styrknum.b) Með umsókn skal senda greinargóða námslýsingu og upplýsingar
um hvernig námið nýtist í starfi.c) Fái umsækjandi styrk frá öðrum skal það tilgreint.
Stjórn sjóðsins, ásamt fulltrúa frá skrifstofu SFR, heldur að jafnaði fund einu sinni í mánuði þar sem fjallað er um umsóknir sem fyrir liggja.
Stjórnin áskilur sér rétt til breytinga á reglum þessum án fyrirvara.
Athugið að rangar eða illa útfylltar umsóknir geta tafið afgreiðslu styrkbeiðnar.

