Beint á leiðarkerfi vefsins

SFR.is

SFR.is

Starfsmenntunarsjóður

Markmið starfsmenntunarsjóðs er að félagsmenn geti leitað eftir fjárstuðningi vegna kostnaðar við nám sem beinlínis er við það miðað að þeir geti tileinkað sér framfarir og tæknibreytingar í sínu starfi. Sömuleiðis að þeir geti nýtt sér námskeið, sem geri þeim mögulegt að taka að sér vandasamari störf en þeir gegna, og eigi ennfremur kost á endurhæfingarmenntun séu störf þeirra lögð niður vegna tækni- og/eða skipulagsbreytinga.

Starfsmenntunarsjóður setur sér úthlutunarreglur á hverjum tíma sem miðast við þarfir umsækjenda og ráðstöfunarfé sjóðsins.

Stjórn starfsmenntunarsjóðs
Anna Atladóttir frá Landspítala
Ína Halldóra Jónasdóttir frá Tryggingastofnun ríkisins
Ósk Sigurðardóttir frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Páll Steinþórsson frá Ríkisskattstjóra
Sigríður Kristinsdóttir frá Landspítala

Stjórn sjóðsins skipa fjórir aðalmenn og einn varamaður kosnir á aðalfundi til tveggja ára í senn ásamt einum aðalmanni tilnefndum úr stjórn SFR. Stjórn sjóðsins heldur fund einu sinni í mánuði ásamt fulltrúa frá skrifstofu SFR. Þar er fjallað um þær umsóknir sem borist hafa hverju sinni.


Á döfinni

Til félagsmanna

3. September 2010

Náms- og starfsráðgjöf fyrir alla félagsmenn

Fræðslusetrið Starfsmennt býður félagsmönnum aðildarfélaga BSRB upp á náms- og starfsráðgjöf, þeim að kostnaðarlausu. Ráðgjöfin nýtist fólki á öllum aldri til að viðra hugmyndir sínar um nám og starfsþróun. Sjá nánar HÉR.

8. Júní 2010

Fræðsla um svepparíkið

Skráning hafin á námskeið um svepparíkið sem haldið verður síðsumar 2. og 4. september...

12. Maí 2010

Jónsmessuferð Lífeyrisþegadeildar SFR

Uppbókað er í Jóns-messuferð LSFR, en að þessu sinni verður farið til Stykkishólms og í siglingu...

 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré English