Beint á leiðarkerfi vefsins

Orlofssjóður SFR

Mikilvægur þáttur í þjónustustarfi SFR byggir á rekstri og útleigu orlofshúsa sem og íbúða á vegum orlofssjóðs. Forsvarsmenn félagsins hafa kappkostað að eiga orlofshús á eftirsóknarverðum stöðum þar sem félagsmenn geta notið dvalar í notalegum húsum í umhverfi sem gefur fjölbreytta möguleika til útivistar og hvíldar. Ítarlegri upplýsingar má finna á orlofsvef.

Stjórn Orlofssjóðs
Gréta Húnfjörð Sigurðardóttir frá Landspítala 
Ólafur Hallgrímsson frá Listaháskóla Íslands
Sigrún Kristjánsdóttir frá ÁTVR
Sigurður Georgsson frá Menntaskólanum við Sund 
Vilhjálmur Pálmason frá Háskóla Íslands
Regína Vilhjálmsdóttir frá LSR (varamaður)

Reglur orlofssjóðs samkv. 20. gr. laga SFR

1. gr. Nafn sjóðsins
Sjóðurinn heitir Orlofssjóður SFR. Sjóðurinn er í eigu SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu. Heimili hans og varnarþing er í Reykjavík.

2. gr. Tilgangur sjóðsins.
Tilgangur sjóðsins er að auka möguleika félagsmanna á fjölbreytni í orlofsmálum, til dæmis með því að koma upp og reka orlofshús og -íbúðir fyrir félagsmenn eða styrkja þá til annars konar orlofsdvalar.

3. gr. Tekjur sjóðsins.
Tekjur sjóðsins eru:
a) Samningsbundin gjöld atvinnurekenda til sjóðsins.
b) Vaxtatekjur.
c) Leigugjöld af orlofshúsum og orlofsíbúðum.

4. gr. Greiðslur úr sjóðnum.
Allar greiðslur úr sjóðnum aðrar en þær er varða daglegan rekstur hans, rekstrargjöld orlofshúsa/-íbúða, leigu orlofshúsa í eigu annarra og/eða til annarrar venjubundinnar starfsemi á vegum sjóðsins, skulu háðar samþykki stjórnar SFR. Á þetta einkum við um greiðslur sem ekki hafa áður verið hluti af hefðbundinni starfsemi sjóðsins, eða ef upphæðir teljast umtalsverðar miðað við þá starfsemi sem er á vegum hans á hverjum tíma.

5. gr. Stjórn sjóðsins.
Stjórn sjóðsins skipa fjórir aðalmenn og einn varamaður kosnir á aðalfundi til tveggja ára í senn ásamt einum aðalmanni tilnefndum úr stjórn SFR. Formaður skal kjörinn af sjóðstjórn. Stjórn sjóðsins skal halda gerðarbók yfir störf sín og setja úthlutunarreglur.
Stjórnin skal leggja úthlutunarreglurnar fyrir stjórn félagsins  til samþykktar.
Stjórnarmönnum er ekki heimilt að sitja samfellt í stjórn lengur en þrjú kjörtímabil (6 ár). 

6. gr. Rekstur sjóðsins og ávöxtun.
Skrifstofa SFR sér um daglegan rekstur sjóðsins í umboði stjórnar hans. Fé sjóðsins skal ávaxta á sem tryggastan hátt.

7. gr. Ársreikningur og endurskoðun.
Ársreikning sjóðsins skal birta með reikningum SFR og endurskoðaður með sama hætti og félagssjóður. Ársreikninginn skal leggja fram og afgreiða á aðalfundi með öðrum reikningum félagsins. Skýrsla yfir starfsemi sjóðsins skal fylgja skýrslu stjórnar SFR.

8. gr. Breytingar á reglum sjóðsins.
Reglum þessum má aðeins breyta á aðalfundi SFR og fer með þær breytingar eins og um lagabreytingar væri að ræða.

Samþykktar á aðalfundi SFR 2011.


Slóðin þín:

Sjóðir og styrkir » Orlofssjóður
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti