Sjóðir
SFR félagar geta sótt um styrki úr;
- Starfsmenntunarsjóði vegna;
- starfsmenntunar
- Styrktar- og sjúkrasjóði vegna;
- veikinda, hafi þeir klárað veikindarétt sinn
- sjúkraþjálfunar / sjúkranudds / hnykklækninga
- krabbameinsleitar
- áhættuskoðunar hjá Hjartavernd
- sálfræði-, félags- og fjölskylduráðgjafar
- dvalar á heilsustofnun
- líkamsræktar
- augnaðgerða og gleraugnakaupa
- tannviðgerða
- ættleiðingar, glasafrjóvgunar og tæknisæðingar
- heyrnartækja
- útfarar
Fimm sjóðir eru á vegum félagsins, þ.e. félagssjóður, vinnudeilusjóður, orlofssjóður, starfsmenntunarsjóður og styrktar- og sjúkrasjóður. Um orlofssjóð, starfsmenntunarsjóð og styrktar- og sjúkrasjóð hefur verið samið í kjarasamningum og eru iðgjaldagreiðslur til þeirra samningsatriði á hverjum tíma.
Iðgjald til félagssjóðs og vinnudeilusjóðs er ákveðið á aðalfundi félagsins sem setur vinnudeilusjóði reglur og ákveður fjárhagsáætlun fyrir félagssjóð ár hvert. Félagssjóður stendur undir öllum rekstri félagsins en úr vinnudeilusjóði, sem stofnaður var á aðalfundi félagsins árið 1992, er m.a. úthlutað til félagsmanna í kjaradeilum.
Þá starfrækir félagið í samvinnu við starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytisins þróunar- og símenntunarsjóð.
Fréttabréf SFR
Á döfinni
Til félagsmanna
2. Mars 2010
Staðreyndir um hamingju - glærur
1. Mars 2010
Orlofsblað SFR í vinnslu
27. Janúar 2010
Komdu í kór!
Maí kórinn er kór BSRB félaga og er opinn öllum félögum í aðildarfélögum BSRB, vinum þeirra og vandamönnum. Kórfélagar hittast einu sinni í viku á þriðjudagskvöldum kl. 20:15 í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, og syngja saman fjölbreytt lög undir styrkri stjórn Svövu Kristínar Ingólfsdóttur. Í hópnum er vant söngfólk og óvant, bæði karlar og konur. - Allir eru velkomnir.



















