Vestmannaeyjar - Foldahraun
Leigt frá 1. apríl - 30. september. Dags- og helgarleiga. Fyrstur bókar, fyrstur fær!
Um er að ræða 100 m² íbúð við Foldahraun, á þriðju hæð og með sér inngangi. Íbúðin skiptist í hjónaherbergi og tvö barnaherbergi. Í hjónaherberginu er tvíbreitt rúm, í öðru barnaherberginu rúm sem er 140 X 200 cm og í hinu er rúmið 100 X 200 cm. Auk þess eru 2 aukadýnur í íbúðinni. Rúmgóðir skápar eru í tveimur herbergjum.
Í íbúðinni er vel búið eldhús, stofa og baðherbergi með sturtu og þvottavél með innbyggðum þurrkara. Í eldhúsi er að finna öll algeng eldhúsáhöld og rafmagnstæki, svo sem eldavél með ofni, stóran ísskáp, örbylgjuofn, kaffivél og brauðrist. Á svölum íbúðarinnar eru útihúsgögn og gasgrill.
Staðarlýsing: Hægt er að heimsækja Vestmannaeyjar með flugi eða ferju. Eyjarnar eru rómaðar fyrir stórkostlegt landslag og SFR er stolt af því að bjóða félagsmönnum sínum nú upp á að leigja fallega íbúð á þessum eftirsótta stað. Í Eyjum má finna afar góða þjónustu við ferðafólk og þar er fjöldi veitinga- og skemmtistaða. Greiður aðgangur er að íþróttasölum og sundlaug bæjarins með heitum pottum og gufubaði. Auk þess má í Eyjum finna glæsilegan 18 holu golfvöll sem staðsettur er í nágrenni við íbúðina. Hægt er að velja fjölmargar spennandi skoðunarferðir á sjó, í lofti og á landi, þar sem m.a. er boðið upp á stórkostlegt útsýni, fjölskrúðugt fuglalíf, sjóstangaveiði, gönguferðir og útreiðar, svo fátt eitt sé nefnt.
Nánari upplýsingar má finna á www.vestmannaeyjar.is eða www.islandsvefurinn.is.
Nauðsynlegt og gott að taka með: Salernispappír, handsápu og sjampó, sængurfatnað (lín) og lök, handklæði, plastpoka, eldhúsrúllur, kaffipoka (filter), kerti og eldspýtur, álpappír, krydd, sykur og olíu til steikingar og svo hleðslutæki fyrir gemsann.
ATHUGIÐ!
Gæludýr eru stranglega bönnuð á orlofshúsasvæðunum - gildir líka fyrir gæludýr gesta.
Reykingar eru stranglega bannaðar í húsunum.
Góð umgengni er hagur okkar allra og því er mikilvægt að skilja við eins og við viljum koma að. SFR áskilur sér rétt til að innheimta sérstakt þrifagjald þar sem ekki er nægjanlega vel skilið við.



















