Varmahlíð - Skagafirði


Leigt frá 28. maí til 25. júní og 9. júlí til 3. september 2010.
Í Varmahlíð hafa félagsmenn SFR afnot af 60 m2 orlofshúsi. Húsið er bjálkahús með þremur svefnherbergjum með
svefnplássi fyrir 8 manns. Húsið er búið öllum venjulegum þægindum, s.s. WC með sturtu, ísskáp og eldavél með ofni, kaffivél, örbylgjuofni og borðbúnaði fyrir 8-10 manns. Úti er góð verönd með útihúsgögnum, gasgrilli
og heitum rafmagnspotti. Hægt er að leigja rúmfatnað og handklæði. Ætlast er til að hver þrífi eftir sig en einnig er hægt er að kaupa þrif (5000 kr). Þau þarf að panta hjá umsjónarmanni.
Staðarlýsing: Húsið er staðsett í 9 húsa orlofshverfi í nágrenni við Reykjaskóg. Flesta nauðsynlega þjónustu má fá í þjónustukjarnanum í Varmahlíð þar sem er verslun, banki, sundlaug o.fl. Auk þess er mikið úrval af afþreyingu og ferðaþjónustu í boði á svæðinu.
Reykjavík - Varmahlíð 294 km.
Akureyri - Varmahlíð 94 km.
Sauðárkrókur - Varmahlíð 25 km.
Nánari upplýsingar um svæðið má finna á www.nordurland.is og www.varmahlid.is.
Nauðsynlegt og gott að taka með: Salernispappír, handsápu og sjampó, sængurfatnað (lín) og lök, handklæði, diskaþurrkur, borðtuskur, plastpoka, eldhúsrúllur, kaffipoka (filter), kerti og eldspýtur, álpappír, krydd, sykur og olíu til steikingar, vasaljós og svo hleðslutæki fyrir gemsann.
ATHUGIÐ!
Gæludýr eru stranglega bönnuð - það gildir líka um gæludýr gesta.
Reykingar eru stranglega bannaðar í húsunum.
Góð umgengni er hagur okkar allra og því er mikilvægt að skilja við eins og við viljum koma að. SFR áskilur sér rétt til að innheimta sérstakt þrifagjald þar sem ekki er nægjanlega vel skilið við.




