Beint á leiðarkerfi vefsins

Tjaldvagnar

 Tjaldvagn.gif

Leigt frá13. maí - 26. ágúst 2010.

Um er að ræða tvo Combi Camp vagna með þægilegri 4-6 manna svefnaðstöðu. Það tekur einungis 10-15 sekúndur að tjalda þeim án nokkurrar áreynslu. Gluggatjöld er fyrir öllum gluggum og í svefnrými eru svefntjöld sem skipta því í tvö hólf sem þó er hægt að opna á milli og breyta í eitt stórt. Fyrir framan svefnrýmið hangir bómullarstykki með vösum á sem nýtist vel sem geymslurými undir alls kyns smáhluti. Fastur fylgibúnaður með vagni eru stólar fyrir 4, borð og gashelluborð með 2 hellum. Einnig er hægt að leigja aukabúnað eins og gashitara. Gas er ekki innifalið í verði. Fortjald er einnig hægt að leigja aukalega.

Vikuleiga er frá fimmtudegi (kl. 13-16) til miðvikudags (eigi síðar en kl. 17).

Tjaldvagnaleigan þarf að fá kreditkortanúmer leigjanda sem tryggingu fyrir vagninum. 


Slóðin þín:

Orlofsvefur » Upplýsingavefur » Tjaldvagnar
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti