Súðavík
Leigt frá 4. júní til 27. ágúst 2010.
Húsið er við Túngötu. Íbúðin er á neðri hæð og með sér inngangi. Í íbúðinni er stór stofa búin þægilegum húsgögnum, þrjú svefnherbergi með rúmum fyrir 6 (hjónarúm er í hjónaherbergi). Sængur, koddar og borðbúnaður er fyrir 8. Sjónvarp, útvarp og örbylgjuofn er í íbúðinni. Nýbyggður sólpallur ásamt útihúsgögnum er við húsið.
Staðarlýsing: Súðavík er miðsvæðis á norðanverðum Vestfjörðum. Dvöl þar er góður kostur fyrir þá sem vilja nýta fríið sitt í að ferðast og skoða sig um á Vestfjörðum þar sem vissulega er um marga skemmtilega staði að velja. Stutt er frá Súðavík til Ísafjarðar og jarðgöngin gera það að verkum að mun auðveldara er nú en áður að ná yfir stærri hluta Vestfjarðarkjálkans og ferðast um sunnanverða Vestfirði.
Almennar upplýsingar um landsvæðið má finna á www.vestfirdir.is.
Nauðsynlegt og gott að taka með: Salernispappír, handsápu og sjampó, sængurfatnað (lín) og lök, handklæði, diskaþurrkur, borðtuskur, plastpoka, eldhúsrúllur, kaffipoka (filter), kol og grillvökva (ef kolagrill), kerti og eldspýtur, álpappír, krydd, sykur og olíu til steikingar, vasaljós og svo hleðslutæki fyrir gemsann.
ATHUGIÐ!
Gæludýr eru stranglega bönnuð í húsunum - það gildir líka um gæludýr gesta.
Reykingar eru stranglega bannaðar.
Góð umgengni er hagur okkar allra og því er mikilvægt að skilja við eins og við viljum koma að. SFR áskilur sér rétt til að innheimta sérstakt þrifagjald þar sem ekki er nægjanlega vel skilið við.
Sjá verð.
|
|



















