Beint á leiðarkerfi vefsins

SFR.is

SFR.is

Raðhús í Stykkishólmi - Laufásvegur


     

Leigt frá 14. maí til 4. júní og 12. júní til 3. september 2010. 

Íbúðin er 67 m2 að stærð. Á neðri hæð er hjónaherbergi með tvíbreiðu rúmi, gestaherbergi með koju og baðherbergi með sturtu. Á efri hæð er stofa/borðstofa og eldhús í samfelldu rými svo og lítið gestaherbergi
með svefnsófa. Svefnpláss, sængur og koddar eru fyrir 7 manns. Auk þess er í íbúðinni barnarúm og barnastóll. Hringstigi er á milli hæða. Í eldhúsinu er allur almennur búnaður fyrir 12 manns, eldavél með bakaraofni, örbylgjuofn og uppþvottavél. Í stofu er sófi og þrír stofustólar, borðstofusett með 6 stólum, sjónvarp með DVD spilara og útvarp með geislaspilara. Út frá efri hæð eru svalir með heitum potti, grilli og svalahúsgögnum. 

Staðarlýsing: Dvalargestir mega leika golf á Víkurvelli án þess að greiða vallargjald samkvæmt sérstökum samningi á milli leigusala og Golfklúbbsins Mostra. 

Almennar upplýsingar um landsvæðið má finna á www.vesturland.is og www.islandsvefurinn.is.  

Nauðsynlegt og gott að taka með: Salernispappír, handsápu og sjampó, sængurfatnað (lín) og lök, handklæði, diskaþurrkur, borðtuskur, plastpoka, eldhúsrúllur, kaffipoka (filter), kol og grillvökva (ef kolagrill), kerti og eldspýtur, álpappír, krydd, sykur og olíu til steikingar, vasaljós og svo hleðslutæki fyrir gemsann. 

ATHUGIÐ!
Gæludýr eru stranglega bönnuð í húsunum - það gildir líka um gæludýr gesta.
Reykingar eru stranglega bannaðar. 

Góð umgengni er hagur okkar allra og því er mikilvægt að skilja við eins og við viljum koma að. SFR áskilur sér rétt til að innheimta sérstakt þrifagjald þar sem ekki er nægjanlega vel skilið við. 

Sjá verð

BÓKUNARVEFUR 


Á döfinni

Til félagsmanna

3. September 2010

Náms- og starfsráðgjöf fyrir alla félagsmenn

Fræðslusetrið Starfsmennt býður félagsmönnum aðildarfélaga BSRB upp á náms- og starfsráðgjöf, þeim að kostnaðarlausu. Ráðgjöfin nýtist fólki á öllum aldri til að viðra hugmyndir sínar um nám og starfsþróun. Sjá nánar HÉR.

8. Júní 2010

Fræðsla um svepparíkið

Skráning hafin á námskeið um svepparíkið sem haldið verður síðsumar 2. og 4. september...

12. Maí 2010

Jónsmessuferð Lífeyrisþegadeildar SFR

Uppbókað er í Jóns-messuferð LSFR, en að þessu sinni verður farið til Stykkishólms og í siglingu...

 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré English