Spánn - Quesada - Hús 190
- Dags- og helgarleiga 31. maí til 3. september 2010.
- Hægt að bóka á vefnum frá 17. mars 2010.
- Ekki úthlutað. Fyrstur bókar, fyrstur fær!
- SFR er ekki eigandi að þessu húsi einungis milliliður milli félagasmanna og húseigenda. Því er ekki um neina endurgreiðslu á leigu að ræða ef leigjendur forfallast af einhverjum ástæðum nema SFR takist að endurleigja húsið.
Húsið er staðsett í bænum Quesada. Um er ræða raðhús. Neðri hæðin er 75 m2 og 35 m2 sólarverönd er á efri hæð. Tvö svefnherbergi eru í húsinu með svefnplássi fyrir fjóra og svefnsófi fyrir tvo er í stofu. Eldhús og stofa eru eitt rými. Rúmfatnaður, handklæði, tuskur og viskastykki eru í húsinu ásamt öllum nauðsynlegum búnaði fyrir allt að átta manns. Gert er ráð fyrir að gestir þrífi eftir sig sjálfir en hægt er að panta þrif ef það er gert um leið og bókað er.
Staðarlýsing: Bærinn heitir Quesada, yndislegur og ljúfur bær. Þar má finna marga góða veitingastaði, s.s kínverskan, steikhús og ítalskan. Stutt er í matvöruverslunina við golfvöllinn. Einnig er verslunarmiðstöðin Mercadona í Rojales í nágrenninu, þangað er aðeins um 3 mín. akstur. Ekið er framhjá golfvellinum, beygt til vinstri á gatnamótunum og þá er búðin á vinstri hönd. Einnig er stutt í bæði apótek og banka í miðbæ Quesada.
Ströndin í Guardamar er hrein og falleg og því um að gera að gera sér ferð þangað. Á sunnudögum kl. 8-14 er markaður rétt fyrir utan Quesada. Keyrt er í gegnum Quesada og komið að hringtorgi, beygt út úr útkeyrslu nr. 2 og síðan ekið áfram þar til komið er að hringtorgi þar sem beygt er út af í útk. nr 2. Markaðurinn er á hægri hönd.
Það eru 11 km til aðalbæjarins, Torrevieja, þar sem er mikið mannlíf. Þar má finna stórmarkaðinn Carrefour og verslunarmiðstöðina Habaneras. Það er fallegt að labba um Torrevieja og skoða gamla bæinn. Þar er mjög falleg kirkja og gaman að fara og skoða bátana á bryggjunni. Þar er líka markaður og lítið tívolí.
Frá Quesada er stutt til margra góðra staða. Þannig tekur aðeins um 50 mín. að keyra til Alicante og 1,5 klst. til Benidorm þar sem stóri skemmtigarðurinn Terra Mitica er. Til Valencia eru 3,5 km. - yndisleg borg sem gaman er að koma til og er m.a. fræg fyrir TAPAS matsölustaðina sína. Til Cartagena, sem er gömul kafbátahöfn og fallegur gamall bær, er 2 klst. akstur.
Margur á eflaust eftir að freistast til að taka nokkra hringi á þessum glæsilega golfvelli sem er í næsta nágrenni húsanna.
Sjá verð.





















