Beint á leiðarkerfi vefsins

Skorradalur

SkorradalurSkorradalur uti1Skorradalur veröndSkorradalur - bordstofaSkorradalur stofa1Skorradalur - stofa2

Stórar myndir   Leigutími allt árið.

Nýtt orlofshús félagsins í Skorradal, 80 m2 nýbyggt heilsárshús með 3 svefnherbergjum, baðherbergi og eldhúsi og stofu, sem eru í einu rými. Í húsinu er svefnaðstaða fyrir 4-6. Eitt svefnherbergið er með tvöföldu rúmi, sem hægt er að taka í sundur, en hin herbergin tvö með rúmum sem hvort um sig eru 120 sm á breidd. Einnig eru tvær aukadýnur í húsinu. Borðbúnaður er fyrir 8 manns, örbylgjuofn, uppþvottavél, ísskápur með frysti, kolagrill, útvarp með geislaspilara, sjónvarp og DVD tæki. Húsið er allt flísalagt nema svefnherbergin eru parketlögð. Allar innréttingar og húsbúnaður er vandaður og húsið búið öllum nútímaþægindum. Á verönd er heitur rafmagnspottur, kolagrill, borð og sex stólar. Þaðan má njóta stórfenglegs útsýnis yfir Skorradalsvatn og til Skarðsheiðar.

Staðarlýsing: Orlofshús félagsins í Skorradal er í landi Vatnsenda og stendur ofarlega í hlíðinni við Skorradalsvatn. Almennar upplýsingar um landsvæðið má finna á www.vesturland.is og www.islandsvefurinn.is.

Nauðsynlegt og gott að taka með: Salernispappír, handsápu og sjampó, sængurfatnað (lín) og lök, handklæði, diskaþurrkur, borðtuskur, plastpoka, eldhúsrúllur, kaffipoka (filter), kol, kerti og eldspýtur, álpappír, krydd,  sykur og olíu til steikingar, vasaljós og svo hleðslutæki fyrir gemsann.

ATHUGIÐ!
Gæludýr eru stranglega bönnuð - gildir líka fyrir gæludýr gesta.
Reykingar eru stranglega bannaðar.

Góð umgengni er hagur okkar allra og því er mikilvægt að skilja við eins og við viljum koma að. SFR áskilur sér rétt til að innheimta sérstakt þrifagjald þar sem ekki er nægjanlega vel skilið við.

Verð

BÓKUNARVEFUR

 


Slóðin þín:

Orlofsvefur » Upplýsingavefur » Skorradalur
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti