Beint á leiðarkerfi vefsins

107 Reykjavík - Grandavegur 45


  Stækka mynd
 
  Stækka mynd

 Grandav_stofa_sofi
  Sjá fleiri myndir HÉR

 

Leigutími: Allt árið.                             Eingöngu fyrir félagsmenn utan að landi.

Í fjölbýlishúsi að Grandavegi 45 á félagið 3ja herbergja íbúð á 1. hæð. Innréttingar í eldhúsi og baðherbergi voru endurnýjaðar í mars 2008 og um leið voru húsgögn í stofu og borðstofu endurnýjuð, parket pússað og allt málað. Svefnstæði eru fyrir 6, þ.e. fyrir 2 í hjónaherbergi, 2 í barnaherbergi og 2 í sófa á gangi. Í íbúðinni er þvottavél með þurrkara, sjónvarp, DVD spilari og útvarp með geislaspilara.

Staðarlýsing: Almennar upplýsingar um Reykjavík má finna á www.rvk.is.  

Nauðsynlegt og gott að taka með: Salernispappír, handsápu og sjampó, sængurfatnað (lín) og lök, handklæði, diskaþurrkur, borðtuskur, plastpoka, eldhúsrúllur, kaffipoka (filter), kerti og eldspýtur, álpappír, krydd,  sykur og olíu til steikingar, vasaljós og svo hleðslutæki fyrir gemsann.

ATHUGIÐ!
Gæludýr eru stranglega bönnuð - gildir líka fyrir gæludýr gesta.
Reykingar eru stranglega bannaðar.

Góð umgengni er hagur okkar allra og því er mikilvægt að skilja við eins og við viljum koma að. SFR áskilur sér rétt til að innheimta sérstakt þrifagjald þar sem ekki er nægjanlega vel skilið við.

Sjá verð.

BÓKUNARVEFUR 
 


Slóðin þín:

Orlofsvefur » Upplýsingavefur » Reykjavík - Grandavegur 45
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti