Beint á leiðarkerfi vefsins

SFR.is

SFR.is

Brekkuskógur, Biskupstungum

   

Leigt frá 21. maí til 3. september 2010.

Í sumar verður eitt hús í boði í Brekkuskógi fyrir félagsmenn SFR. Húsið sem um ræðir er A-hús, 46 m2 að grunnfleti, auk 25 m2 svefnlofts. Húsið er vel búið. Svefnaðstaða er fyrir 4-5, en auk þess eru fjórar aukadýnur á svefnloftinu. Tvö svefnherbergi, stofa, forstofa, eldhús og baðherbergi með sturtu. Í eldhúsi eru öll algeng eldhúsáhöld og rafmagnstæki, svo sem eldavél með ofni, ísskáp, örbylgjuofn, kaffivél, brauðrist, vöfflujárn og fleira. Sólpallur er við húsið, heitur pottur, útihúsgögn og kolagrill. Umsjónarmaður svæðisins afhendir hreinlætisvörur. Hann hefur aðsetur í þjónustumiðstöðinni Brekkuþingi. Hægt er að leigja lín í þjónustumiðstöðinni og þar má líka komast á netið.

Staðarlýsing: Í Brekkuskógi er lítið þorp sumarbústaða. Til þjónustu fyrir orlofsgesti er þjónustumiðstöðin Brekkuþing, þar sem m.a. er sími, sjónvarp, myndbandstæki, lítið bókasafn og spil til sameiginlegra afnota fyrir gesti. Við hliðina á þjónustumiðstöðinni er baðhús með gufubaði, heitum pottum og sturtum. Lítill barnaleikvöllur er skammt frá og minigolfvöllur, en hægt er að leigja kylfur hjá umsjónarmanni. Stutt er úr Biskupstungum yfir í byggðakjarnann við Laugarvatn og raunar má segja að stutt sé úr Biskupstungum um allt Suðurland þar sem margar af helstu náttúruperlum landsins er að finna. Í Árnessýslu er jafnframt umfangsmikil þjónusta við ferðamenn og því af nógu að taka fyrir þá sem dvelja í orlofshúsunum í Brekkuskógi og vilja leita sér afþreyingar í nágrenninu.

Amennar upplýsingar um landsvæðið má finna á www.travelnet.is/laugarvatn.  

Nauðsynlegt og gott að taka með: Salernispappír, handsápu og sjampó, sængurfatnað (lín) og lök, handklæði, diskaþurrkur, borðtuskur, plastpoka, eldhúsrúllur, kaffipoka (filter), kol, kerti og eldspýtur, álpappír, krydd,  sykur og olíu til steikingar, vasaljós og svo hleðslutæki fyrir gemsann.

ATHUGIÐ!
Gæludýr eru stranglega bönnuð - gildir líka fyrir gæludýr gesta.
Reykingar eru stranglega bannaðar.

Góð umgengni er hagur okkar allra og því er mikilvægt að skilja við eins og við viljum koma að. SFR áskilur sér rétt til að innheimta sérstakt þrifagjald þar sem ekki er nægjanlega vel skilið við.

Sjá verð.

BÓKUNARVEFUR


Á döfinni

Til félagsmanna

3. September 2010

Náms- og starfsráðgjöf fyrir alla félagsmenn

Fræðslusetrið Starfsmennt býður félagsmönnum aðildarfélaga BSRB upp á náms- og starfsráðgjöf, þeim að kostnaðarlausu. Ráðgjöfin nýtist fólki á öllum aldri til að viðra hugmyndir sínar um nám og starfsþróun. Sjá nánar HÉR.

8. Júní 2010

Fræðsla um svepparíkið

Skráning hafin á námskeið um svepparíkið sem haldið verður síðsumar 2. og 4. september...

12. Maí 2010

Jónsmessuferð Lífeyrisþegadeildar SFR

Uppbókað er í Jóns-messuferð LSFR, en að þessu sinni verður farið til Stykkishólms og í siglingu...

 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré English