Hólasetur í Biskupstungum
Myndagallerí. Leigt frá 28. maí - 10. sept.
![]()
Um er að ræða tvö hús í landi Fellskots, þ.e. 85 m2 sumarhús með rúmum fyrir 9 manns og 26 m2 gestahús með rúmum fyrir 4. Húsin eru einungis leigð út saman. Þeim er vel við haldið og þau eru á skemmtilegum stað. Í þeim eru sjónvörp, ísskápar og í því stærra er þvottavél með innbyggðum þurrkara. Þá er baðherbergi með sturtu í báðum húsunum. Allur almennur eldhúsbúnaður fylgir, s.s. örbylgjuofn, brauðrist, kaffivélar og borðbúnaður fyrir 13 manns samtals.
Staðarlýsing: Húsin eru staðsett á besta stað ca 4 km norðan við Reykholt. (Þegar komið er að sjoppunni í Reykholti er ekið beint áfram og eru húsin vinstra megin við bæinn Fellskot.) Útsýni er hindrunarlaust frá norðaustri til suðvesturs yfir Tungufljót, Bræðratungu, Miðfell, Langholt, Vörðufell og Hestfjall. Í næsta nágrenni er urmull spennandi ferðamannastaða, en Hólasetur er aðeins 25 km frá Laugarvatni og 15 km frá Geysi. Í Reykholti er sundlaug og verslun.
Nauðsynlegt og gott að taka með: Salernispappír, handsápu og sjampó, sængurfatnað (lín) og lök, handklæði, diskaþurrkur, borðtuskur, plastpoka, eldhúsrúllur, kaffipoka (filter), kol og grillvökva (ef kolagrill), kerti og eldspýtur, álpappír, krydd, sykur og olíu til steikingar, vasaljós og svo hleðslutæki fyrir gemsann.
ATHUGIÐ!
Gæludýr eru stranglega bönnuð - það gildir líka um gæludýr gesta.
Reykingar eru stranglega bannaðar í húsunum.
Góð umgengni er hagur okkar allra og því er mikilvægt að skilja við eins og við viljum koma að. SFR áskilur sér rétt til að innheimta sérstakt þrifagjald þar sem ekki er nægjanlega vel skilið við.
Sjá Verð.



















