Akurgerði, Ölfusi
|
|
|
Stórar myndir hér. Leigt frá 14. maí til 3. september 2010.
GÆLUDÝR VELKOMIN --- GÆLUDÝR VELKOMIN --- GÆLUDÝR VELKOMIN
Húsið er 54 m2 með 26 m2 svefnlofti. Í húsinu eru tvö svefnherbergi, annað með hjónarúmi, hitt með kojum. Á svefnloftinu eru 7 dýnur. Niðri er stofa, eldhús með borðkrók og baðherbergi með sturtu. Sængur og koddar eru fyrir 8. Við bústaðinn er stór verönd með heitum potti, húsgögnum og gasgrilli.
Staðarlýsing og kort: Orlofshúsið í Akurgerði er mitt á milli Hveragerðis og Selfoss, við rætur Ingólfsfjalls. Í nágrenninu eru hestaleigur, golfvellir, góðir veiðimöguleikar, sundlaugar og spennandi gönguleiðir.
Nánari upplýsingar má finna á www.sudurland.is og www.travelnet.is.
Nauðsynlegt og gott að taka með: Salernispappír, handsápu og sjampó, sængurfatnað (lín) og lök, handklæði, diskaþurrkur, borðtuskur, plastpoka, eldhúsrúllur, kaffipoka (filter), kol og grillvökva (ef kolagrill), kerti og eldspýtur, álpappír, krydd, sykur og olíu til steikingar, vasaljós og svo hleðslutæki fyrir gemsann.
ATHUGIÐ!
Reykingar eru stranglega bannaðar.
Góð umgengni er hagur okkar allra og því er mikilvægt að skilja við eins og við viljum koma að. SFR áskilur sér rétt til að innheimta sérstakt þrifagjald þar sem ekki er nægjanlega vel skilið við.
Sjá verð.



