Akureyri íbúð Skálatúni 35

Stórar myndir hér. Leigutími allt árið.
Í parhúsinu að Skálatúni 35 á Akureyri á félagið góða og vel búna 4ra herbergja íbúð á efri hæð. Svefnstæði eru fyrir 5-6 manns. Í tveimur svefnherbergjanna eru 4 rúm sem hægt er að setja saman tvö og tvö, en í því þriðja er eitt 140 sm breitt rúm. Auk þess er barnaferðarúm í íbúðinni. Sængur og koddar eru fyrir 8 manns. Í eldhúsi er m.a. uppþvottavél og örbylgjuofn og í stofu hljómflutningstæki, útvarp, sjónvarp og myndbandstæki/DVD spilari. Í íbúðinni er einnig þvottavél og þurrkari. Út frá stofunni eru litlar svalir þar sem er kolagrill.
Staðarlýsing: Íbúðirnar eru staðsettar í nýlegu hverfi rétt utan við miðbæ Akureyrar. Stutt er í alla þjónustu, svo sem sundlaug, verslanir, veitingastaði og banka.
Almennar upplýsingar um landsvæðið má finna á www.akureyri.is og www.travelnet.is.
Nauðsynlegt og gott að taka með: Salernispappír, handsápu og sjampó, sængurfatnað (lín) og lök, handklæði, diskaþurrkur, borðtuskur, plastpoka, eldhúsrúllur, kaffipoka (filter), kerti og eldspýtur, álpappír, krydd, sykur og olíu til steikingar, vasaljós og svo hleðslutæki fyrir gemsann.
ATHUGIÐ!
Gæludýr eru stranglega bönnuð - það gildir líka um gæludýr gesta.
Reykingar eru stranglega bannaðar í húsunum.
Góð umgengni er hagur okkar allra og því er mikilvægt að skilja við eins og við viljum koma að. SFR áskilur sér rétt til að innheimta sérstakt þrifagjald þar sem ekki er nægjanlega vel skilið við.
Sjá verð.



