Orlofsspurningar
1. Skiptir máli hvenær umsókn er send inn?
Nei, á umsóknartíma skiptir ekki máli hvenær umsókn er skilað inn. Sá félagsmaður sem sækir um á fyrsta degi hefur ekki meiri möguleika en sá sem skilar inn umsókn á síðasta degi. Það er sá félagsmaður sem er með hæstu punktastöðu sem fær úthlutað. Varðandi þetta þá skiptir máli hvernig hópur umsækjenda er samansettur, það er hvað þeir sem sækja um sömu vikuna eru með háa punktastöðu. Júlí og fyrsta vika í ágúst er vinsælasti tíminn. Ef félagsmenn merkja við fleiri staði og tímasetningar þá aukast möguleikar á úthlutun.
2. Get ég fengið endurgreitt, ef aðstæður breytast, eftir að hafa gengið frá greiðslu fyrir orlofshús?
Ef eign er skilað til baka með innan við viku fyrirvara er ekki um endurgreiðslu á leigu að ræða nema hún leigist aftur út og þá það sem innheimtist. Ef t.d. eignin leigist bara í helgarleigu en viðkomandi er með viku þá er það sem innheimtist endurgreitt til viðkomandi félagsmanns. Þetta á við um allt árið.
Ef um endurgreiðslu er að ræða er alltaf endurgreitt með sama greiðslumáta og notaður var við bókun þ.e. inn á kreditkort ef greitt var með kreditkorti o. s. frv.
3. Get ég breytt áður innsendri umsókn ef umsóknarfrestur er ekki útrunninn?
Ef félagsmaður vill breyta umsókn þá skráir hann sig aftur inn á bókunarvefinn, velur lið sem heitir „Umsóknir og úthlutanir“, slær inn umsóknarnúmerið og ýtir á „breyta umsókn“ gerir þær breytingar sem hann vill og sendir svo umsóknina aftur. Þá á að koma önnur staðfesting með nýju umsóknarnúmeri í tölvupóst félagsmanns.
Ef félagsmaður hefur ekki aðgang að tölvu, er mjög gagnlegt að finna sér einhvern annan til að taka á móti svarinu þegar úthutun er lokið. Til dæmis ættingja eða vini sem eru mikið í netsamskiptum. Þeir geta þá látið félagsmann vita eða gengið frá greiðslu fyrir viðkomandi svo hann missi ekki af úthlutuninni.
Með í úthlutunarbréfinu, eftir að umsóknarferli er lokið, er númer sem viðkomandi notar til að greiða úthlutun á vefnum undir liðnum „umsóknir og úthlutanir“.

