Orlofspunktar og úthlutanir
Orlofspunktar fyrr og nú:
- Félagsmenn ávinna sér 12 orlofspunkta á ári, þ.e. 1 punkt fyrir hvern unninn mánuð. (Fram til ársins 2008 var ávinnslan 6 punktar á ári).
- Punktastaða er uppfærð árlega áður en páskaúthlutun fer fram.
- Orlofspunktar stýra því hverjir eru í forgangi á úthlutunartímum (flestir punktar = mestir möguleikar).
Úthlutanir / orlofsmöguleikar „kosta“ mismarga orlofspunkta:
- 2 punktar: Fyrir hvern hótelmiða.
- 5 punktar: Fyrir hvern sólarhring í íbúðum og húsum í dags- og helgarleigu fyir sumartímann.
- 10 punktar: Fyrir hvert gjafabréf í flug og orlofsávísanir.
- 40 punktar: Fyrir sumarhús og íbúðir á tímabilinu 1/6-31/8.)
- Orlofshús sem standa út af eftir að úthlutun lýkur eða losna óvænt á úthlutnartímanum kosta líka punkta.
- Orlofshús sem bókuð eru utan úthlutnatíma kosta ekki punkta.
- Útilegukortið, Veiðikortið og miðar í Hvalfjarðargöng kosta ekki punkta.
- Allir virkir félagsmenn geta sótt um á úthlutnartímum þó þeir eigi fáa eða enga punkta. Þá fer punktastaða viðkomandi í mínus.
- Hægt er að skoða punktastöðu á ORLOFSVEFNUM / BÓKUNARVEFNUM.
Úthlutunartímabil:
- Úthlutunartímabil eru tvö, páskar og sumar.
- Umsóknartími fyrir páskaleigu er auglýstur í SFR blaðinu í janúar og er úthlutað seinnipartinn í febrúar.
- Umsóknartími fyrir sumarið er auglýstur í SFR blaðinu í febrúar/mars og úthlutað er í lok mars.
Umsóknir fyrir úthlutunartímabil skulu fara hér í gegnum bókunarvef SFR. Um leið og úthlutun er auglýst er opnað fyrir umsóknir.
Þegar úthlutun er lokið:
Þeir orlofskostir sem ekki ganga út við úthlutun eru settir á netið eins fljótt og hægt er og gildir þá reglan „fyrstur bókar fyrstur fær“. Þessar vikur kosta það sama í punktum eins og hjá þeim sem fengu úthlutað nema annað sé tekið fram.
Ef félagsmaður fær ekki úthlutað því sem hann sótti um þá lendir hann sjálfkrafa á biðlista í ákveðinn tíma eftir að úthlutun er lokið.
Ef fólk gleymir að sækja um áður en umsóknarfrestur rennur út er ekki hægt að bæta því inn á biðlista.Félagsmenn sem fá úthlutað fá ákveðinn greiðslufrest til að ganga frá úthlutuninni en þegar þeim fresti er lokið þá er að úthlutað aftur eftir biðlista því sem ekki var greitt og því sem var skilað. Þessi vinna við endurúthlutun getur tekið eina til tvær vikur. Eftir það er allt sem losnar sett á netið jafnóðum.

