Beint á leiðarkerfi vefsins

Orlofsmál lífeyrisþega SFR

Eftir starfslok þarf að óska eftir inngöngu í Lífeyrisþegadeildina t.d. með einu símtali. Félagsmenn verða ekki sjálfkrafa félagar í Lífeyrisþegadeild.

Lífeyrisþegar safna ekki orlofspunktum eftir starfslok og eiga takmarkaðan rétt í orlofssjóði á úthlutunartímum en þess utan er ýmislegt í boði sem auglýst er hverju sinni.

Úthlutunartímar eru um páska og á sumrin og á öðrum tímum bóka félagsmenn sig í hús sjálfir og eru þá fjórir mánuðir opnir fyrir bókanir á netinu þ.e. yfirstandandi mánuður og þrír til viðbótar.

Sumarorlofstíminn í ár, 2012, er frá 25. maí - 31. ágúst. Síðustu tvær vikurnar eru með 20% afslætti fyrir lífeyrisþega í húsum SFR. Afslátturinn kemur ekki fram við bókun á netinu en ef fólk hefur aðgang að netinu og getur greitt þar með korti þá er það fljótlegast og best. Hægt að hringja á skrifstofu SFR og óska eftir að fá 20% afsláttinn endurgreiddan og er þá lagt inn á kortið.

Lífeyrisþegar geta sótt um eitt hús í Munaðarnesi allt sumarið og er það hús númer 73 þetta árið. Engin afsláttur er á úthlutunartímum að undanskildum síðustu vikum eins og segir hér að ofan. Það sem ekki úthlutast er sett á netið eftir að úthlutun er lokið og þá mega ALLIR bóka. Lífeyrisþegar verða að sækja um skriflega - umsókn fylgir orlofsblaði SFR sem á að berast öllum um miðjan mars.  Umsóknareyðublað er að finna í Orlofsblaði SFR sem verður sent út í annarri viku mars.

Miða í Hvalfjarðargöngin er hægt að kaupa á skrifstofunni og kosta þeir 635 kr.stykkið*.
(*samkvæmt verðskrá Spalar á hverjum tíma)

Vetrartími: Lífeyrisþegar fá 20% afslátt af helgarleigu yfir vetrartímann og svo stendur þeim til boða að leigja sér hús á virkum dögum í Vaðnesi og Munaðarnesi fyrir 1000 kr. nóttina.

Ef auglýst er sérstaklega með orðunum: Fyrstur kemur fyrstur fær, þá mega ALLIR sækja um t.d. flugmiða, útilegukort, veiðikort. Einnig geta allir bókað dvöl í svokölluðum dagleiguhúsum og í útlöndum (Spánn og Kaupmannahöfn).  

Gjafabréf í flug
Félagsmenn LSFR geta keypt gjafabréf í flug. Gjafabréf Icelandair kostar kr. 20.000, andvirði 25.000 kr. Gjafabréf Iceland Express verður einnig að andvirði 25.000 kr. en þegar blaðið fór í fjölritun var enn verið að semja um verð. Þá er einnig verið að semja við flugfélagið WOW sem mun bjóða upp á flug í júní, júlí og ágúst. Sjá nánar í orlofsblaði SFR. 

Edda og Fosshótel
Miðar á Eddu og Fosshótel eru fyrir ALLA og þá getur félagsmaður fengið allt að sjö miða á sumri. Miðarnir eru í boði á netinu frá 2. júní til 1. ágúst eða meðan birgðir endast.

Spánn og Kaupmannahöfn!
Lífeyrisþegar geta bókað íbúðina í Kaupmannahöfn og á Spáni, þeim er ekki úthlutað. Opnað verður fyrir bókanir í útlöndum  11. mars. Vikuleiga í Kaupmannahöfn kostar kr. 77.500 og á Spáni kostar vikan kr. 44.000.


Slóðin þín:

Orlofsvefur » Orlofsmál lífeyrisþega