Beint á leiðarkerfi vefsins

Spánn

spann385fyrirframanhusSFR hefur til umráða tvö hús í bænum Quesada á Spáni. Húsin eru þannig skipuð að íbúðin sjálf er 70 fm., inniverönd ca 20 fm. og þar fyrir utan er Sólarþakverönd ca. 34 fm. Hvort hús er fyrir 6 manns, eitt herbergi með hjónarúmi, annað herbergi með tveimur stökum rúmum og að lokum svefnsófi fyrir tvo í stofu. Húsunum fylgir afnot að sundlaug sem er í aðeins nokkurra skrefa fjarlægð.

SFR  er ekki eigandi að þessaum húsum, einungis milliliður milli félagasmanna og húseigenda. þannig að það er ekki um neina endurgreiðslu á leigu að ræða ef leigjendur forfallast af einhverjum ástæðum nema SFR takist að endurleigja húsið. 

Til að bóka hús smellirðu hér á BÓKUNARVEF. Skráðu þig inn með kennitölu og netfangi. Veldu SFR og þá opnast þitt svæði. Þar geturðu skoðað hvað er laust með því að velja „Bókanir laust" á slánni undir fjallgarðinum. 

Bærinn Quesada er yndislegur og ljúfur bær. Þar má finna marga góða veitingastaði, s.s kínverskan, steikhús og ítalskan. Stutt er í matvöruverslunina við golfvöllinn. Einnig er verslunarmiðstöðin Mercadona í Rojales í nágrenninu, en þangað er aðeins um 3 mín. akstur. Einnig er stutt í bæði apótek og banka í miðbæ Quesada.

Ströndin í Guardamar er hrein og falleg og því um að gera að gera sér ferð þangað. Á sunnudögum kl. 8-14 er markaður rétt fyrir utan Quesada. Keyrt er í gegnum Quesada og komið að hringtorgi, beygt út úr útkeyrslu nr. 2 og síðan ekið áfram þar til komið er að hringtorgi þar sem beygt er út af í útk. nr 2. Markaðurinn er á hægri hönd.

Það eru 11 km til aðalbæjarins, Torrevieja, þar sem er mikið mannlíf. Þar má finna stórmarkaðinn Carrefour og verslunarmiðstöðina Habaneras. Það er fallegt að labba um Torrevieja og skoða gamla bæinn. Þar er mjög falleg kirkja og gaman að fara og skoða bátana á bryggjunni. Þar er líka markaður og lítið tívolí.

Frá Quesada er stutt til margra góðra staða. Þannig tekur aðeins um 50 mín. að keyra til Alicante og 1,5 klst. til Benidorm þar sem stóri skemmtigarðurinn Terra Mitica er. Til Valencia eru 3,5 km. - yndisleg borg sem gaman er að koma til og er m.a. fræg fyrir TAPAS matsölustaðina sína. Til Cartagena, sem er gömul kafbátahöfn og fallegur gamall bær, er 2 klst. akstur. 


Slóðin þín:

Orlofsvefur » Orlofshús í útlöndum » Spánn