Beint á leiðarkerfi vefsins

Kaupmannahöfn

útsýniÍbúðin er 3 herb.og björt og falleg á fjórðu hæð í gömlu sjarmerandi húsi. Almenningssamgöngur eru rétt handan við hornið en einungis er um fimm mínútna gangur yfir í Metro. Ef farið er i Metro í áttina að Vanlose þá er næsta stopp Kongens Nytorv við Magasin du Nord neðst á strikinu og ef fólk vill fara í Amagercenter er farið í Metro í áttina að Lufthaven og þá er það næsta stopp í hina áttina. Og þegar fólk fer heim þá er farið í Metro í áttina að Lufthavnen og farið alveg til enda ( ekki Kastrup) þetta er mjög þægilegur ferðamáti og kostar 1,5 klipp á 2 Zona korti á mann út á flugvöll en annars 1 klipp á mann á strikið eða Amagercenter. Aldrei að gleyma að borga í Metro því sektin er 600 dkr á mann ef f‘ólk er gripið í tékki.

Svefnaðstaða í íbúðinn er eftirfarandi:

  • Tvö rúm eru í svefnherbergi sem hægt er að setja saman eða aðskilja
  • Rúmið í minna herberginu er 140 cm á breidd.
  • Svefnsófi í stofu fyrir tvo
  • Tveir svefnkollar (frá Tempur) í stofu
  • Eitt ferðarúm fyrir ungabarn

Öll venjuleg þægindi eru í íbúðinni. Reykingar eru með öllu óheimilar í öllu húsinu. Hægt er að reykja úti á svölum. Gestir er vinsamlegast beðnir um að ganga hljóðlega um á svölunum þar sem öll hljóð berst auðveldlega um hverfið, sem sagt engin leyndarmál þar.

Til að bóka hús smellirðu hér á BÓKUNARVEF.

IMG_6443  IMG_6444  IMG_6446


Slóðin þín:

Orlofsvefur » Orlofshús í útlöndum » Kaupmannahöfn