Beint á leiðarkerfi vefsins

Vestmannaeyjar - Bárustígur

VESTMANNABRAUT_3Við hornið á Bárustíg og Miðstræti í hjarta Vestmannaeyjabæjar er nýstandsett og falleg 80 fm íbúð á annarri hæð sem SFR félögum býðst að leigja í vetur. Íbúðin er stofa, eldhús, hjónaherbergi, stórt hol þar sem verður svefnsófi fyrir 2 og  síðan er lítið gluggalaust herbergi með svefnaðstöðu fyrir 1. Einnig eru 2 auka dýnur í íbúðinni. Svefnpláss er fyrir 5-7 manns og borðbúnaður fyrir 8 manns.

Staðarlýsing: Hægt er að heimsækja Vestmannaeyjar með flugi eða ferju. Eyjarnar eru rómaðar fyrir stórkostlegt landslag og SFR er stolt af því að bjóða félagsmönnum sínum annað sumarið í röð að leigja fallega íbúð á þessum eftirsótta stað. Íbúðin við Bárustíg er í hjarta Vestmannaeyjabæjar og örstutt þaðan í alla þjónustu. Þess má geta að ekki færri en tvö bakarí eru handan við hornið. Í Eyjum er afar góð þjónusta við ferðafólk og þar er fjöldi veitinga- og skemmtistaða.  Greiður aðgangur er að íþróttasölum og sundlaug bæjarins með heitum pottum og gufubaði. Auk þess má í Eyjum finna glæsilegan 18 holu golfvöll. Hægt er að velja fjölmargar spennandi skoðunar ferðir á sjó, í lofti og á landi, þar sem m.a. er boðið upp á stórkostlegt útsýni, fjölskrúðugt fuglalíf, sjóstangaveiði, gönguferðir og útreiðar, svo  fátt eitt sé nefnt.

Nánari upplýsingar má finna á www.vestmannaeyjar.is, www.islandsvefurinn.is, www.sudurland.is og www.travelnet.is.

Nauðsynlegt og gott að taka með: Salernispappír, handsápu og sjampó, sængurfatnað (lín) og lök, handklæði,  diskaþurrkur, borðtuskur, plastpoka, eldhúsrúllur, kaffipoka (filter), kerti og eldspýtur, álpappír, krydd, sykur og olíu til steikingar, vasaljós og svo hleðslutæki fyrir gemsann.

ATHUGIÐ!

  • Gæludýr eru stranglega bönnuð í húsunum það gildir líka um gæludýr gesta.
  • Reykingar eru stranglega bannaðar.
  • Góð umgengni er hagur okkar allra og því er mikilvægt að skilja við eins og við viljum koma að. SFR áskilur sér rétt til að innheimta sérstakt þrifagjald þar sem ekki er nægjanlega vel skilið við.

Íbúðin er í dagleigu. Opnað fyrir bókanir sumarsins 29. mars 2012 kl. 9. Fylla út umsókn hér.

Vestmannaeyjar-031 1 Vestmannaeyjar vinnuferð 2011 052 [1600x1200]2 Vestmannaeyjar vinnuferð 2011 071 [1600x1200]4 Vestmannaeyjar vinnuferð 2011 068 [1600x1200]


Slóðin þín:

Orlofsvefur » Orlofshús á Íslandi » Vestmannaeyjar