Beint á leiðarkerfi vefsins

Vaðnes

Bollagarðar 1 útimynd (2) [1600x1200]Á orlofshúsasvæði SFR í Vaðnesi eru átta hús. Í húsunum eru 3 svefnherbergi með 6 svefnstæðum og 2 aukadýnum. Í húsum 8 og 10 er neðri koja breiðari í öðru barnaherberginu. Heitir pottar eru við hvert hús, kolagrill á útipalli og leiktæki á svæðinu. Vaðnes er u.þ.b. 75 km. frá Reykjavík, nálægt Kerinu í Grímsnesi.

Frá Vaðnesi er stutt til margra vinsælla ferðamannastaða allt um kring, s.s. Gullfoss, Geysis, Þingvalla, Laugarvatns o.fl. Næsti þéttbýliskjarni er Selfoss. Næsta sundlaug er á Borg í Grímsnesi. Golfvöllur er að Hraunborgum sem og minigolf.

Almennar upplýsingar um landsvæðið má finna á www.islandsvefurinn.is.

Athugið!  Allt dýrahald er stranglega bannað á staðnum. Umsjónarmanni er heimilt að vísa fólki með dýr í burtu. 

Til að bóka hús smellirðu hér á BÓKUNARVEF. Skráðu þig inn með kennitölu og netfangi. Veldu SFR og þá opnast þitt svæði. Þar geturðu skoðað hvað er laust með því að velja „Bókanir laust" á slánni undir fjallgarðinum. 


Slóðin þín:

Orlofsvefur » Orlofshús á Íslandi » Vaðnes