Beint á leiðarkerfi vefsins

Þúfukot í Reykholti

ÞúfukotÞúfukot er í landi Fells í Biskupstungum og er 52 fm að stærð. Húsið er með 2 svefnherbergjum á neðri hæð og  svefnlofti. Svefnaðstaða með sængum og koddum er fyrir 8 manns. Í eldhúsi er allur almennur búnaður og borðbúnaður fyrir 12 manns. Umhverfis húsið er stór skjólgóður pallur með heitum potti, gasgrilli og útihúsgögnum. Gæludýr eru velkomin í húsið.

Staðarlýsing: Þúfukot er í landi Fells í Biskupstungum. Húsið stendur hátt oger með útsýni yfir í Reykholt. Þúfukot stendur rétt utan við Reykholt í Biskupstungum. Í næsta nágrenni eru margir spennandi ferðamannastaðir. Í Reykholti er verslun, sundlaug og veitingasala.

Almennar upplýsingar um landsvæðið má finna á www.sudurland.is og www.travelnet.is 

Nauðsynlegt og gott að taka með: Salernispappír, handsápu og sjampó, sængurfatnað (lín) og lök, handklæði,  diskaþurrkur, borðtuskur, plastpoka, eldhúsrúllur, kaffipoka (filter), kerti og eldspýtur, álpappír, krydd, sykur og olíu til steikingar, vasaljós og svo hleðslutæki fyrir gemsann. 

HundurATHUGIÐ!

  • Gæludýr eru velkomin.
  • Reykingar eru stranglega bannaðar.
  • Góð umgengni er hagur okkar allra og því er mikilvægt að skilja við eins og við viljum koma að. SFR áskilur sér rétt til að innheimta sérstakt þrifagjald þar sem ekki er nægjanlega vel skilið við.

Húsið er í leigu allt árið en verður úthlutað yfir sumartímann.


Slóðin þín:

Orlofsvefur » Orlofshús á Íslandi » Þúfukot Biskupstungum