Beint á leiðarkerfi vefsins

Skorradalur

Aðgengi [1600x1200]Húsið stendur í landi Vatnsenda og er skammt frá sveitabænum Vatnsenda. Húsið er um 80 fm. að stærð og í því eru þrjú svefnherbergi, baðherbergi,eldhús og stofa eru samliggjandi. Gistirými í húsinu er fyrir ca. 6  gesti. Bent skal á að húsið stendur nokkuð hátt í lóðinni þannig að það eru töluvert margar tröppur upp að húsinu. Um 75 km eru frá Reykjavík til Skorradals en frá Borgarnesi er það u.þ.b. 15-20 mín fjarlægð. Almennar upplýsingar um landsvæðið má finna á www.vesturland.is.

Athugið!  Allt dýrahald er stranglega bannað á staðnum. Umsjónarmanni er heimilt að vísa fólki með dýr í burtu. 

Til að bóka hús smellirðu hér á BÓKUNARVEF. Skráðu þig inn með kennitölu og netfangi. Veldu SFR og þá opnast þitt svæði. Þar geturðu skoðað hvað er laust með því að velja „Bókanir laust" á slánni undir fjallgarðinum. 


Slóðin þín:

Orlofsvefur » Orlofshús á Íslandi » Skorradalur