Beint á leiðarkerfi vefsins

Reykjavík Sóltún

Soltun_utimynd_2008Íbúðin sem um ræðir er í nýlegu fjölbýlishúsi. þetta er glæsileg 100 fermetra endaíbúð á 3. hæð og henni fylgja tvennar svalir  Lyfta er í húsinu. Íbúðin er þriggja herbergja með svefnplássi fyrir u.þ.b. 5. 

Lyklar eru afhentir leigjendum á skrifstofu SFR.

Það sem fólk þarf alltaf að hafa með sér er:  Rúmfatnaður, handklæði, viskustykki, tuskur til þrifa og  wc-pappir. Þetta gildir um öll hús SFR nema annað sé tekið fram.  

Athugið!

  • Eingöngu fyrir fólk af landsbyggðinni.
  • Allt dýrahald er stranglega bannað á staðnum. Umsjónarmanni er heimilt að vísa fólki með dýr í burtu. 
  • Ef gestir eru að koma á sunnudögum verður að hafa samband við skrifstofu varðandi lykla á föstudegi fyrir kl 16.

Til að bóka hús smellirðu hér á BÓKUNARVEF. Skráðu þig inn með kennitölu og netfangi. Veldu SFR og þá opnast þitt svæði. Þar geturðu skoðað hvað er laust með því að velja „Bókanir laust" á slánni undir fjallgarðinum. 


Slóðin þín:

Orlofsvefur » Orlofshús á Íslandi » Reykjavík Sóltún