Reykjavík Grandavegur
Í fjölbýlishúsi að Grandavegi 45 á félagið u.þ.b. 85 fm. 3ja herbergja íbúð á 1. hæð. Í fyrra var öll íbúðin tekin í gegn máluð, skipt um innréttingar og flest húsgögn. Svefnpláss er fyrir 6.
Lyklar eru afhentir á skrifstofu SFR.
Það sem fólk þarf alltaf að hafa með sér er: Rúmfatnaður, handklæði, viskustykki,tuskur til þrifa og wc-pappir. Þetta gildir um öll hús SFR nema annað sé tekið fram.
Athugið!
- Eingöngu fyrir fólk af landsbyggðinni.
- Allt dýrahald er stranglega bannað á staðnum. Umsjónarmanni er heimilt að vísa fólki með dýr í burtu.
- Ef gestir eru að koma á sunnudögum verður að hafa samband við skrifstofu varðandi lykla á föstudegi fyrir kl 16.
Til að bóka hús smellirðu hér á BÓKUNARVEF. Skráðu þig inn með kennitölu og netfangi. Veldu SFR og þá opnast þitt svæði. Þar geturðu skoðað hvað er laust með því að velja „Bókanir laust" á slánni undir fjallgarðinum

